Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 18:39 Björgunarsveitir hafa verið kallaðar til. Teitur Þorkelsson Björgunarsveitir hafa síðdegis og í kvöld aðstoðað vegfarendur sem lent hafa í vandræðum á hringveginum undir Eyjafjöllum. Veginum var á tímabili lokað vegna þess að bílar sátu fastir.
Í tilkynningu sem birtist á vef Vegagerðarinnar klukkan rúmlega átta segir að opið sé fyrir umferð um hringveginn á ný en vegurinn var lokaður í meira en þrjá klukkutíma fram til þess. Fram kemur að hringvegurinn á milli Markarfljóts og Mýrdalssands sé á óvissustigi og gæti lokast með stuttum fyrirvara. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir í samtali við fréttastofu að björgunarsveitirnar Víkverji í Vík, Bróðurhönd undir Eyjafjöllum, Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu hafi verið ræstar út í verkefnið. Einhver fjöldi fólks hafi verið í vandræðum vegna aðstæðna á svæðinu. Honum hafi borist upplýsingar um ófærð á veginum og að björgunarsveitir hafi verið kallaðar út til að ferja fólk úr rútu á veginum að hóteli í grenndinni. Ekki lágu fyrir upplýsingar um hvort rútan sæti föst eða ekki. Uppfært: Seint á sjöunda tímanum segir Jón Þór í samtali við fréttastofu að enn sé unnið að því að ferja fólk af veginum og í skjól. Óskað hafi verið eftir meiri mannskap frá björgunarsveitunum í verkefnið. Teitur Þorkelsson leiðsögumaður hafði beðið í bílaröðinni í um eina og hálfa klukkustund þegar blaðamaður náði tali af honum. Hann grunar að röðin hafi myndast einhverju áður en hann kom á svæðið. Vont skyggni er á veginum. Teitur Þorkelsson „Þetta er allt í kaos,“ segir Teitur í samtali við fréttastofu um ástandið á svæðinu. Hann hafi þó í starfi sínu séð ýmislegt. Teitur segir að þegar hvessir svo rækilega líkt og nú verði fljótt til skaflar sem auki líkurnar á að bílar festist á veginum. Hann sér því fram á að þurfa að dúsa á veginum eitthvað áfram. „Maður hefur nú lent í ýmsu. Maður setur bara á góða tónlist og fer í djúpslökun,“ segir Teitur. Á veginum er bíll við bíl.Teitur Þorkelsson Samkvæmt viðvaranakorti Veðurstofu Íslands tók gul viðvörun gildi á Suður- og Suðausturlandi klukkan sex. Viðvörunin verður í gildi til hádegis á morgun. „Austan 10-18 m/s og skafrenningur, einkum undir Eyjafjöllum. Getur valdið umferðartruflunum,“ segir á vefnum um ástandið á Suðurlandi. Gul veðurviðvörun er í gildi á svæðinu. Teitur Þorkelsson Fréttin hefur verið uppfærð.
Færð á vegum Veður Björgunarsveitir Umferð Rangárþing eystra Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Sjá meira