Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 18:03 Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir með gullmerki sín. @ ia_akranes/Jón Gautur Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir voru báðir sæmdir gullmerki ÍA á aðalfundi Knattspyrnufélags ÍA á dögunum.
Arnar og Bjarki voru þó ekki einu knattspyrnugoðsagnir Skagamanna sem fengu slíkt gullmerki við þessi tímamót því það fengu einnig Teitur Þórðarson og Pétur Pétursson. Á fundinum voru þeir fjórir heiðraðir fyrir framlag sitt til félagsins og íslenskrar knattspyrnu en allir hafa þeir borið hróður ÍA víða um land og erlendis um áratugaskeið. Allir urðu þeir Íslandsmeistarar með ÍA áður en þeir fóru út í atvinnumennsku í Evrópu. Arnar, Bjarki og Pétur komu líka allir heim og spiluðu með Skagamönnum eftir að atvinnumennskunni lauk. Teitur ílengdist erlendis og hóf þjálfaraferil sinn sem varð mjög farsæll. Rekstur Knattspyrnufélags ÍA er sagður sterkur og fjárhagsstaðan heilbrigð. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð og nam 54 milljónum króna. Í lok árs 2025 hefur félagið byggt upp sterka lausa- og eiginfjárstöðu sem gerir félaginu kleift að halda áfram að efla innviði og styrkja samkeppnishæfni sína. Fjöldi iðkenda heldur áfram að aukast og jókst þátttaka í yngri flokka starfi félagsins um fimmtán prósent milli ára, sem endurspeglar öflugt og vaxandi starf. Skagamenn hafa síðan farið yfir það af hverju þessar fjórar goðsagnir fengu gullmerkið en hér fyrir neðan má sjá pistla um tvíburana Arnar og Bjarka. View this post on Instagram A post shared by ÍA Akranes FC (@ia_akranes) View this post on Instagram A post shared by ÍA Akranes FC (@ia_akranes)
ÍA Fótbolti Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira