Þeim fjölgar sem skilja Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 20:03 Theodór Francis biðlar til fólks um að fara hægar inn í sambönd. Mikill meirihluti fólks sem giftir sig skilur á einhverjum tímapunkti, í hið minnsta í Bandaríkjunum. Klínískur félagsráðgjafi segir vísbendingar um að staðan sé svipuð á Íslandi og segir fólk fara of geyst af stað í sambönd.
Rætt var við Theodór Francis Birgisson klínískan félagsráðgjafa um hjónaskilnaði og tíðni þeirra í Bítinu á Bylgjunni. „Við vorum að fá rannsókn í fyrra sem við höfum verið að miða við núna, hún er reyndar bandarísk, þar kemur fram að hjá gagnkynhneigðum pörum er skilnaðartíðnin komin upp í 77 prósent,“ segir Theodór. Hann segist gruna að tölurnar séu svipaðar hér á landi. Fólk fari of hratt inn í sambönd „Bæði segir þetta okkur að fólk fer of hratt inn í sambönd en þetta segir okkur líka að fólk er ekki tilbúið til þess að vinna úr vandanum. Það eru of margir sem eru duglegir við að hlaupa í burt frá vandanum í stað þess að horfast í augu við hann.“ Theodór segir ákveðin atriði í lífi hvers einasta einstaklings sem séu óumsemjanleg. Hann nefnir dæmi um sjálfan sig, að hann muni aldrei verða í opnu sambandi og að hans heittelskaða sé á sama stað. Það sé óumsemjanlegt að hann muni flytja erlendis. „Og þessi algjörlega óumsemjanlegu element ætti enginn að ganga út frá, semsagt að hafna. Þar erum við komin með til dæmis hvað ætlum við að eiga mikið af börnum? Viljum við börn? Þar sem skilnaðartölur eru háar þá eru mjög margir sem koma inn í sambönd með börn og ég hef bara séð talsvert af pörum þar sem annar aðili á barn eða börn en hinn ekki og sá sem á ekki barn hann vill eignast barn en sá sem á börn vill ekki fleiri og ef þetta er óumsemjanlegt þá lendir fólk í vandræðum.“ Theodór segir endalaust af atriðum, trúarbrögð, tengdaforeldrar, það sé ýmislegt sem geti komið upp á í samböndum. Fólk ætti að byrja á að kynnast og athuga þá hvort áhugi sé á meiru en vinskap. Hann segir taka langan tíma að búa til traust. „Í parsamböndum þarf öll mál upp á borð, engin leyndarmál og heiðarlega umræðu um hvert einasta atriði. Þetta gerist ekki um eina helgi eða á einni þjóðhátíð.“
Ástin og lífið Bítið Fjölskyldumál Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira