Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Kristján Már Unnarsson skrifar 19. febrúar 2026 13:13 Farþegar á leið til Akureyrar ganga um borð í Dash 8 Q400-vél Icelandair á Reykjavíkurflugvelli. Egill Aðalsteinsson Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni.
Þannig hefst þáttur Flugþjóðarinnar á Sýn+ um innanlandsflotann. Þar kynnast áhorfendur áskorunum í innanlandsfluginu. Við fylgjum fjögurra manna áhöfn Dash 8 Q400-vélar Icelandair í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar og í flugtakinu sitjum við í stjórnklefanum. Á meðan við fljúgum norður fræðumst við um þær flugvélartegundir sem borið hafa uppi innanlandsflugið en einnig Færeyja- og Grænlandsflugið. Hér má sjá upphafsmínútur þáttarins: Í gömlum skúrum á Reykjavíkurflugvelli skyggnumst við bakvið tjöldin. Flugafgreiðslan, opnuð árið 1949, er þó enn í fullri notkun. Aðrar þjónustubyggingar innanlandsflugsins, sem Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, sýnir okkur, eru jafnvel eldri og nokkrar frá árum síðari heimsstyrjaldar. Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, sýnir skúraþyrpinguna sem hýsir starfsemina.Egill Aðalsteinsson Í áhafnaherbergi eru þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður ásamt flugfreyjunum Eddu Björk Friðriksdóttur og Evu Maríu Hilmarsdóttur að undirbúa næstu brottför. Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður fara yfir flugáætlunina í spjaldtölvunum.Egill Aðalsteinsson Þegar flugvélin er komin í flugtaksstöðu prófar Egill Andri stýrin, farið er yfir tékklistann en síðan gefur Jóhann flugstjóri allt í botn. Tveir öflugir hreyflar, samtals yfir ellefu þúsund hestöfl, sjá til þess að flugvélin þýtur af stað. Hún er komin á yfir tvöhundruð kílómetra hraða þegar Jóhann tekur í stýrið og flugvélin lyftist af brautinni. Flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir undirbúa næstu brottför.Egill Aðalsteinsson Hraðinn eykst og Andri tekur hjólin upp. Flugvélin tekur stefnuna yfir Kársnesið og klifrar hratt. Jóhann er enn að handfljúga en brátt setur hann sjálfstýringuna á. Flugfreyjurnar eru viðbúnar því að það geti orðið hristingur á leiðinni. Núna sé tíð ælupoka. Þetta er fimmtándi þáttur Flugþjóðarinnar og sá þriðji í þriðju seríu. Áskrifendur geta séð alla þættina á streymisveitunni Sýn+. Hér má fræðast um efni þriðju þáttaraðar:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Reykjavíkurflugvöllur Akureyrarflugvöllur Tengdar fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19 Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47
Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19
Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50