„Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. febrúar 2026 08:06 Wexner ásamt Ed Razek, yfirmanni markaðsmála hjá L Brands og arkítekt tískusýninga Victoria's Secret. Getty/Astrid Stawiarz Les Wexner, stofnandi Victoria's Secret, Bath and Body Works og Abercrombie & Fitch, bar vitni fyrir þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær og sagðist hafa verið trúgjarn kjáni þegar hann lét fjármál sín í hendur Jeffrey Epstein. „
Hann var svikahrappur. En þrátt fyrir að ég hafi verið gabbaður hef ég ekki gert neitt rangt né hef ég neitt að fela,“ sagði Wexner í yfirlýsingu við upphaf fundarins. Wexner neitaði því ítrekað að hafa þekkt Epstein náið og persónulega. Wexner mætti fyrir nefndina á lokuðum fundi og því liggur vitnisburður hans ekki fyrir í heild. Demókratar sem voru viðstaddir fundinn segja Wexner hins vegar lítið hafa gefið uppi og virðast hafa afar takmarkaða trú á því að hann hafi sagt satt og rétt frá. „Hann heldur því fram að það hafi ekki verið nein vinátta til staðar á milli hans og Epstein,“ sagði þingmaðurinn Roberg Garcia eftir fundinn. Það stæðist hins vegar alls ekki. „Hann hefur verið nefndur af þolendum, er oftar nefndur á nafn í skjölunum en flestir aðrir og var augljóslega velgjörðarmaður Epstein. Hvað í fjáranum er í gangi?“ Wexner sagði fyrir nefndinni að hann hefði jú, ráðið Epstein til að fara með fjármuni sína og veitt honum umboð til þess. Epstein hefði hins vegar lifað tvöföldu lífi og aðeins sýnt sér „fjármálagúru“ hliðina en falið þá hlið sem hefði framið „óhugsandi glæpi“. Auðjöfurinn sagðist hafa slitið á tengslin við Epstein árið 2007, eftir að upp komst að Epstein hefði stolið háum fjárhæðum af fjölskyldunni. Hann hefði ekki talað við hann eftir það. Þingkonan Yassamin Ansari sagði Wexner hafa sagt sig reiðubúin til að aðstoða við rannsóknina á Epstein en haldið því fram á sama tíma að hann myndi fátt, þrátt fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein í áratugi. „Hann heldur því fram að hann hafi séð ekkert illt, heyrt ekkert illt, þrátt fyrir að hafa ítrekað verið í sama herbergi og Epstein,“ sagði þingmaðurinn David Min við New York Times. „Það er bara ekki trúverðugt. Að leggja svo mikið traust á Jeffrey Epstein og segja svo: Ég man ekki eftir að hafa séð neinar ungar stúlkur, ég heyrði aldrei neitt um Jeffrey Epstein. Það er bara ekki trúverðugt.“
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira