Sagði starfi sínu lausu en fær ekki að fara Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. febrúar 2026 18:00 Mehdi Benatia á farsælan feril að baki sem leikmaður og hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá Marseille síðan 2023. Xavier Laine/Getty Images Allt logar innan herbúða franska félagsins Marseille. Þjálfarinn var rekinn og yfirmaður íþróttamála sagði starfi sínu lausu en eigandi félagsins segir að hann muni halda áfram í starfinu það sem eftir lifir tímabils.
Síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar hjá Marseille. Þjálfari liðsins, Roberto De Zerbi, var rekinn síðasta miðvikudag eftir að hafa misst af umspilssæti í Meistaradeildinni og orðið fyrir niðurlægjandi 5-0 tapi gegn PSG í Le Classique leiknum. Stuðningsmenn mótmæltu stjórnarmönnum félagsins í næsta leik, um síðustu helgi gegn Strasbourg. Þar kastaði Marseille frá sér sigri og gerði 2-2 jafntefli eftir jöfnunarmark í uppbótartíma hjá lærisveinum Gary O‘Neil í Strasbourg. Á sunnudag sendi yfirmaður íþróttamála hjá Marseille, Medhi Benatia, frá sér tilkynningu þar sem hann sagði starfi sínu lausu og lýsti yfir óánægju með samskipti innan félagsins. pic.twitter.com/QIvWwD36Or— MBenatia5 (@MedhiBenatia) February 15, 2026 Nú hefur eigandi félagsins, Frank McCourt, hins vegar sagt að Benatia verði áfram í starfinu og muni taka þátt í leitinni að nýjum þjálfara. McCourt ætlar líka sjálfur að ferðast til Frakklands til að lægja öldurnar. „Sem eigandi félagsins er ég á leið til Marseille og mun taka ábyrgð sem eigandi, svo félagið geti einbeitt sér að markmiðum sínum, náð Meistaradeildarsæti og gert góða atlögu að franska bikarnum. Undir stjórn Mehdi Benatia verður nýr þjálfari tilkynntur innan tíðar. Metnaður minn fyrir félaginu hefur ekki breyst. Við skulum virkja okkar krafta fyrir Olympique Marseille“ sagði McCourt.
Franski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Púlsinn tekinn í KR-heimilinu City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira