Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Jakob Bjarnar skrifar 17. febrúar 2026 10:29 Þeir Ásgeir og Þórarinn sátu fyrir svörum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar. Þeir voru spurðir um nýtt frumvarp um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Þeir töluð eins varlega og þeim var unnt en fengu því ekki leynt að þeir töldu að frumvarpið þarfnist endurskoðunar. vísir/anton brink Bæði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu vöruðu við nýju frumvarpi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.
Þar sátu þeir Ásgeir og Þórarinn fyrir svörum. Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki, fór eilítið út fyrir boðaða dagskrá og spurði þá félaga um álit þeirra á nýju og margræddu frumvarpi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Hún spurði um þeirra sjónarmið, ef fram fer sem horfir og engin stefnubreyting verður, hvort ekki sé hætt við að Seðlabankinn standi einn eftir í hinni heilögu þrenningu sem kemur að peningamálum sem væru þá auk hans vinnumarkaðurinn og ríkið? Ásgeir fór yfir stöðuna og skammtímasamningar sem skemmdu að hans mati verulega fyrir komu upp áður en lífskjarasamningarnir litu dagsins ljós. Þeir voru jákvæðir en gengu ekki eftir eins og áætlað var. „Launahækkanir eru nú að koma fram og það má ræða hvernig og hvers vegna það gerðist. Launahækkanir eru miklu meiri í opinbera geiranum en á almenna markaðinum,“ sagði Ásgeir. „Þó ég vilji öryrkjum allt hið besta ...“ Ásgeir sagði helstu ábyrgð hins opinbera snúast um vinnumarkaðinn og þá samninga sem þar eru gerðir. Hann sagði að þeir sem fylgdust með opinberri umræðu áttuðu sig á því að ekki virtist ríkja eining um hvað fælist í lögunum og hans ráðlegging væri að það lægi skýrt fyrir um hvað væri verið að deila um. „En eins og lögin eru skrifuð,“ sagði Ásgeir. Þá er varasamt að tengja stóran hluta ríkisútgjalda við launaþróun í landinu; að einhverju leyti er verið að minnka frelsi fjármálaráðherra til að bregðast við með því. „Þó að ég vilji öryrkjum allt hið besta og hafi samúð með þeim er mikilvægt að launin í landinu séu viðmið. En það má sjá fyrir sér, og ég nefni dæmi um það þegar gengið féll 2008, og í Covid, að þá hækkar verðbólga miklu meira en laun. Það er ástæða til að forðast það sem kallað hefur verið hinn tvöfaldi lás.“ En þetta er nokkuð sem Alþingi ræður og Ásgeir sagðist ekki viss um að það kærði sig um afskipti þeirra Seðlabankamanna. En vert væri að hafa í huga að það er ekki hægt að eyða sama peningnum tvisvar. Launavísitala alls ekki besti mælikvarðinn Þórarinn tók þá við boltanum og tók í sama streng. Hann sagði launavísitölu ekki endilega besta mælikvarðann. Ef til að mynda vinnutíminn er styttur og það metið til launa – þá hækkar launavísitalan. „Það er ekki alveg heppilegt,“ sagði Þórarinn og benti jafnframt á að oft gerðist það við samningaborð að bónusgreiðslur og kaupaukar væru settir inn í regluleg laun sem þá myndi einnig hækka greiðslur almannatrygginga. „Að miða við launavísitöluna er ekki endilega heppilegasti mælikvarðinn að miða við.“ Þórarinn hvatti til þess að þetta verði hugsað betur og Ásgeir benti á, í því samhengi, að launavísitalan hafi verið að hækka miklu hraðar en laun á almennum markaði. „Ég nefni kennarasamningana sem voru töluvert miklar hækkanir, þeir hafa áhrif á launavísitöluna. Hún er ekki endilega besta viðmiðið.“
Seðlabankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Alþingi Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira