Luis Enrique segir orð gullknattarhafans „einskis virði“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 14:03 Það gengur ekki alveg eins vel hjá Luis Enrique, Ousmane Dembele og félögum í Paris Saint-Germain á þessari leiktíð. Getty/Xavier Laine Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain, hefur vakið athygli fyrir harðorð ummæli um stærstu stjörnu síns eigin liðs.
Spánverjinn var að bregðast við ummælum Gullknattarhafans Ousmane Dembélé í kjölfar óvænts 3-1 taps gegn Rennes í frönsku deildinni á föstudag, sem varð til þess að meistararnir misstu toppsæti deildarinnar til Lens. Dembélé virtist saka liðsfélaga sína um of mikla einstaklingshyggju og liðið um að hafa glatað einhverju af því sem hjálpaði þeim að verða Evrópumeistarar á síðasta tímabili og sagði: „Ef við spilum sem einstaklingar mun það ekki ganga,“ sagði Dembélé. Yfirlýsingar leikmanna eftir leik eru einskis virði Þjálfari hans svaraði þessum fullyrðingum hins vegar fullum hálsi og sagði: „Yfirlýsingar leikmanna eftir leik eru einskis virði. Algjörlega einskis virði.“ 🚨🗣️ 𝗡𝗘𝗪: Luis Enrique responds to Ousmane Dembele’s comments on the lack of ‘desire’ from the PSG squad:"The comments about some of my players after this match have NO VALUE for me!"“I will NEVER allow a player to be above the club… On that point, it's clear.""The… pic.twitter.com/roHSNDusPw— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) February 13, 2026 „[Það] eru yfirlýsingar þjálfaranna líka en yfirlýsingar leikmannanna eru einskis virði. Ég ætla ekki að svara neinni spurningu frá leikmanni, neinu svari frá leikmanni,“ sagði Enrique. „Ég mun aldrei leyfa neinum leikmanni að vera ofar félaginu. Svo það er alveg á hreinu. Ég er sá sem ber ábyrgð á liðinu. Ég mun ekki leyfa neinum leikmanni að halda að hann sé mikilvægari en félagið. Ekki ég, ekki yfirmaður íþróttamála, ekki forsetinn,“ sagði Enrique. Eru afleiðing reiði eftir leik „Þannig að þessar yfirlýsingar eru einskis virði. Þær eru afleiðing reiði eftir leik, ég held að það sé augljóst. Við höfum engu að tapa,“ sagði Enrique. Meistararnir höfðu vonast til að ná fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar með sigri á Rennes en þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann biðu þeir óvænts ósigurs gegn andstæðingum sínum sem voru án þjálfara. Þeir lentu undir eftir mark Musa Al-Taamari í fyrri hálfleik áður en Esteban Lepaul tvöfaldaði forystu Rennes á 69. mínútu. Dembélé minnkaði muninn í 2-1 gegn sínu gamla félagi en Rennes átti síðasta orðið þegar Breel Embolo skoraði og gulltryggði 3-1 sigur. „Á síðasta tímabili settum við félagið ofar öllu öðru“ Eftir leikinn gagnrýndi Ballon d'Or-verðlaunahafinn ónefnda meðlimi liðsins og sagði: „Umfram allt verðum við að spila fyrir PSG til að vinna leiki. Ef við spilum sem einstaklingar á vellinum mun það ekki ganga; við munum ekki vinna þá titla sem við viljum,“ sagði Ousmane Dembélé. „Á síðasta tímabili settum við félagið ofar öllu öðru, áður en við hugsuðum um okkur sjálf. Við verðum að endurheimta það, sérstaklega í þessum leikjum,“ sagði Dembélé. „Við vitum að við erum á seinni hluta tímabilsins og Paris St Germain verður að vera í fyrsta sæti, ekki einstakir leikmenn,“ sagði Dembélé. 🔴🔵 PSG - Luis Enrique recadre Dembélé après la défaite à Rennes : "Aucun joueur ne peut se placer au-dessus du club"#SRFCPSG #beINSPORTS pic.twitter.com/RlNkwnC98v— beIN SPORTS (@beinsports_FR) February 14, 2026
Franski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Tryggði sigurinn með glæsimarki Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira