Jón Erik eftir frábæra frammistöðu á ÓL: „Draumur orðinn að veruleika“ Aron Guðmundsson skrifar 17. febrúar 2026 07:01 Jón Erik eftir að hann kom í mark í svigkeppni dagsins á Vetrarólympíuleikunum Vísir/Getty Jón Erik Sigurðsson stóð sig frábærlega í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna þegar hann náði 25. sætinu. Aðstæður voru erfiðar en Jón lét það ekki stöðva sig og náði besta árangri Íslendings í svigi í tvo áratugi. „
Mér líður bara fáránlega vel,“ segir Jón Erik í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Þetta er draumur orðinn að veruleika, að ná svona góðum árangri á Ólympíuleikum. Ég er bara mjög sáttur.“ Með því að enda í 25.sætinu í svigkeppni gærdagsins nær Jón Erik besta árangri Íslendings á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina til þess og er árangur hans, hvað sæti varðar, um leið sá besti í tvo áratugi í svigi hjá Íslendingi en árið 2006 endaði Björgvin Björgvinsson í 22.sæti á Vetrarólympíuleikum þess árs. „Ég var eiginlega ekki ánægður með fyrri ferðina. Þetta var aðeins of öruggt skíðað hjá mér og aðeins of tæpt. En þetta reddaðist og ég náði þá að gera betur í seinni ferðinni. Jón Erik varð í þrítugasta sæti í fyrri ferðinni og fékk því að skíða með úrvalshópnum. Jón Erik fór fyrstur af stað í seinni ferðinni og náði frábærri ferð. Jón kláraði fyrri ferðina af öryggi á 1:04,51 mín en þá síðari glæsilega á 1:01,12 mín. og var því um svaka bætingu hjá honum milli ferða. Hann vann sig líka upp um fimm sæti og endaði því í 25. sæti. Aðeinn einn annar skíðamaður vann sig upp um fleiri sæti í seinni ferðinni. „Það var bara geðveikt að fá að fara þarna fyrstur af stað með öllum stjörnunum, tilfinningin sem fylgdi því var geðveik. Mér leið eins og ég væri bara á akkúrat rétta staðnum þá.“ Sjá mátti að Jón Erik var kampakátur með seinni ferð sína í dag og þegar hann kom í mark beindi hann athygli sinni að myndavélinni og sagði á mjög skýran hátt: „Takk fyrir mig“ „Ég var búinn að lofa flugeldasýningu og var því bara að þakka fyrir mig.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira