Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Freyja Þórisdóttir skrifar 16. febrúar 2026 15:58 Í ályktun sem háskólaráð samþykkti 12. febrúar kemur fram að sex milljarða króna vanti upp á til að standa jafnfætis norrænum háskólum. Í ráðinu situr meða annara Silja Bára, rektor háskólans. Vísir/Anton Brink Fjárframlög ríkisins til Háskóla Íslands þyrftu að vera sex milljörðum krónum hærri á árinu 2026 svo að þau væru sambærileg hinum Norðurlöndunum. Háskólaráð skorar á stjórnvöld að forgangsraða fjármunum í þágu menntunar.
Þetta kemur fram í ályktun sem háskólaráð Háskóla Íslands (HÍ) samþykkti einróma á fundi sínum 12. febrúar en þar var farið yfir stöðu mála varðandi fjármögnun háskólastigsins hér á landi. Nýjasti samanburður við háskóla á Norðurlöndum er byggður á tölum frá árinu 2024 en hann sýnir að til að standa jafnfætis hinum norrænu háskólunum þyrfti fjárveiting til HÍ að vera ríflega tuttugu prósentum hærri en raunin er fyrir árið 2026. „Á sama tíma starfar Háskóli Íslands í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og gerð er sú krafa til hans að árangur og gæði faglegs starfs séu sambærileg við háskóla á Norðurlöndum,“ segir í ályktuninni. Háskólaráð fundaði síðast fimmtudaginn 12. febrúar.Vísir/Bjarni Háskóli Íslands hefur síðustu ár þurft að draga úr ýmissi grunnþjónustu vegna fjárskorts. Í ályktuninni bendir háskólaráð á að núverandi fjárveiting skólans hafi afleiðingar. Það sé sífellt erfiðara að halda úti námsgreinum og það geri skólanum erfitt fyrir að rækja hlutverk sitt sem þjóðskóli. Margar þeirra námsgreina sem útlit er fyrir að þurfi að fella niður eða hafa nú þegar verið felldar niður eru hvergi annars staðar kenndar hér á landi en í HÍ. Á vef hi.is kemur fram að þetta eigi við um allt að þrjá fjórðu námsgreinanna við HÍ. Nemendur borgi brúsann Á sama fundi samþykkti háskólaráð að hækka skrásetningargjald skólans um þriðjung frá og með næsta skólaári. Þannig fer gjaldið úr 75 þúsund krónum á ári yfir í hundrað þúsund krónur á ári. Stúdentahreyfingarnar Röskva og Vaka hafa síðustu vikur mótmælt hækkununum harðlega. Röskva boðaði til mótmæla fyrir utan aðalbyggingu háskólans á meðan á fundinum stóð en Ármann Leifsson forseti Röskvu sagði í viðtali við Vísi að nemendum þætti óásættanlegt að þeir eigi að borga brúsann. Háskólaráð biðlar til íslenskra stjórnvalda að huga betur að fjármögnun háskólastigsins. Þörf sé á breyttri forgangsröðun fjármuna í þágu menntunar og rannsókna, eða eins og segir í ályktuninni, „sem eru undirstaða framfara og áframhaldandi velsældar á Íslandi.“ „Hátt menntunarstig, öflugt rannsóknastarf og nýsköpun eru ófrávíkjanlegur grunnur að því að tryggja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og farsæld samfélagsins til allrar framtíðar,“ segir að endingu í ályktuninni.
Háskólar Hagsmunir stúdenta Skóla- og menntamál Rekstur hins opinbera Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira