Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Jakob Bjarnar skrifar 16. febrúar 2026 11:14 Ásdís Kristjánsdóttir er bæjarstjóri Kópavogur en meirihlutinn þar ákvað fyrir tæpu ári að til að mæta launahækkunum kennara þyrftu bæjarfulltrúar að taka á sig launaskerðingar. visir/anton brink Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogi segir um mistök í stjórnsýslunni að ræða og lækkunin sem ákveðin var í apríl í fyrra hafi ekki komist til framkvæmda. En um leið og þetta uppgötvaðist var haft samband við bæjarfulltrúa og þeim tjáð að þeir hafi fengið ofreiknuð laun eða þóknun og þurfi því að endurgreiða þóknunina.
Í apríl í fyrra ákvað samþykkti meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar. En þessar launalækkanir komust ekki til framkvæmda eins og Pálmi segir. Og hann hefur nú verið að hafa samband við alla bæjarfulltrúa í Kópavogi og rætt við þá hvernig best er að haga endurgreiðslu ofgreiddra launa því ákvörðunin stendur. Þarf að greiða 600 þúsund krónur til baka Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, fulltrúi Pírata í Kópavogi, hafði gert þessa lækkun að umfjöllunarefni í pistli sem hún birti á Vísi þegar þetta var í deiglunni og gagnrýndi að bæjarstjórinn Ásdís Kristjánsdóttir virtist ekki þurfa að taka á sig hlutfallslega launalækkun. Sigurbjörg Erla er ein þeirra sem Pálmi Þór hefur talað við og hún segir að hvað sig varði þá sé þetta 600 þúsund krónur, sem hún þarf að endurgreiða. Þér hlýtur að hafa brugðið við þetta? „Já, svona. Það hefði auðvitað verið betra að hafa greitt þetta jafnt og þétt síðastliðið ár,“ segir Sigurbjörg sem lætur sér þó hvergi bregða, en hún er að hætta í bæjarstjórn, Píratar munu ekki bjóða fram í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ákaflega leiðinleg stjórnsýsluleg mistök Pálmi Þór segir þetta eiga við um allt nefndarkerfið í Kópavogsbæ, bæjarstjórn tekur ákvörðun um lækkunina sem svo hríslast í gegnum allt kerfið. Eru þetta margir einstaklingar? „Jájá, þetta hleypur á tugum,“ segir Pálmi sem enn hefur ekki rætt við alla þá sem þurfa að endurgreiða þóknanir. Kópavogsbær hlaut 2024 tilnefningu frá VIRK fyrir framlag sitt í því að bjóða einstaklingum atvinnutengingu í gegnum VIRK. Pálmi Þór er lengst til hægri.kópavogsbær „Í sjálfu sér eru þetta ekki stórar fjárhæðir en þeir sem eru í mestu trúnaðarstörfunum fyrir sína flokka eru með mestu þóknanirnar. Þetta var um tíu prósenta lækkun sem ákvörðunin hljóðaði uppá en svo er þetta mismunandi eins og fram hefur komið í samantekt í launum kjörinna fulltrúa. Þeir sem eru í bæjarstjórnum eru yfirleitt á föstu kaupi meðan aðrir eru með öðrum nefndum eru að fá greitt per fund.“ Í stórum ráðum er fundað tvisvar í mánuði meðan aðrar nefndi funda kannski se sinnum á ári. Þetta er því ólíkt milli hópa og er þetta alveg niður í fimm þúsund krónur sem þarf að endurgreiða. „Þetta eru ákaflega leiðinleg stjórnsýsluleg mistök og bæjarfulltrúar eru beðnir afsökunar á því,“ segir Pálmi Þór.
Kópavogur Kjaramál Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Kennaraverkfall 2024-25 Kjaraviðræður 2023-25 Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara í gærkvöldi. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar. 9. apríl 2025 08:56 Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira
Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara í gærkvöldi. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar. 9. apríl 2025 08:56