Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 12:30 Júlía Kristín Jóhannesdóttir setti Íslandsmet í 60 metra grindahlaupi. Instagram/@jjuliakristin Júlía Kristín Jóhannesdóttir sló í gær 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnarsdóttur í 60 metra grindahlaupi. Hún segist hafa haft eitt í huga fyrir hlaupið; að bæta metið.
Júlía Kristín stundar nám við Rice University í Texas í Bandaríkjunum og var meðal keppenda á Tyson Invitational, sterku silfurmóti sem fram fór í Bandaríkjunum um helgina. Margt frambærilegasta frjálsíþróttafólk heims keppti á mótinu, til að mynda spretthlauparinn Noah Lyles sem fagnaði sigri í 200 metra hlaupi á 20,56 sekúndum. Júlía keppti í 60 metra grindahlaupi og hafnaði í 5. sæti á nýju Íslandsmeti og skólameti þegar hún hljóp á 8,25 sekúndum. Saira Prince var fyrst í mark á 8,13 og Salieci Myles önnur á 8,14. Adeyah Brewster og Skye Tolbert höfnuðu í þriðja og fjórða sæti, báðar á 8,25 líkt og Júlía, en voru nokkrum þúsundhlutum úr sekúndu á undan nýja Íslandsmethafanum. View this post on Instagram A post shared by Júlía Kristín Jóhannesdóttir (@jjuliakristin) Júlía bætti Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur sem var sett árið 1996 upp á 8,31 sekúndu, en Guðrún jafnaði metið árið 2000, sama ár og hún varð í 7.sæti á Ólympíuleikunum í Sydney í 400m grindarhlaupi. Hin tvítuga Júlía Kristín var að vonum ánægð að hlaupi loknu en með árangrinum setti hún jafnframt skólamet í Rice University. „Ég kom með eitt markmið inn í mótið og það var að hlaupa átta tuttugu og eitthvað. Ég sagði það við pabba um morguninn áður en ég hljóp,“ segir Júlía og bætir við: „Ég hef haft augun á metinu síðan í vetur og var rosalega ánægð að hafa náð því. Það var gaman að slá tvær flugur í einu höggi og hlaupa skólamet í leiðinni. Formið er geggjað og ég er spennt fyrir því sem er fram undan.“ View this post on Instagram A post shared by Rice Women's TF & XC (@ricewtfxc)
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira