Flytjum íslenska skóla út! Guðmundur Finnbogason og Jakob Fríman Þorsteinsson skrifa 13. febrúar 2026 13:30 Eins og undanfarin misseri hefur skólamálaumræða verið fyrirferðarmikil og það er jákvætt. Aðallega er rætt um læsi og mismunandi leiðir til að efla skólastarf, og stundum felst umræðan í gagnrýni á það sem gert er. En í íslenskum skólum fer almennt fram gott starf. Okkur finnst þó að rödd skólafólks mætti heyrast meira í þessari umræðu. Við viljum því benda á nokkur atriði sem við teljum geta eflt nám barna og mætt þeim áskorunum sem skólar standa frammi fyrir. Þetta eru jafnframt aðferðir og hugmyndir sem við teljum að samfélagið allt myndi hagnast á. Náttúra, samfélagsmiðlar og aukið frelsi Samfélagslegar breytingar hafa dregið úr tækifærum ungs fólks til að upplifa og njóta náttúrunnar og þeirra lífsgæða sem útivera felur í sér. Börn eru minna úti en áður og svæðin sem þau þekkja og nýta sér fara sífellt minnkandi. Þetta má meðal annars rekja til aukins hraða í samfélaginu og tæknibreytinga síðustu áratuga. Mestu breytingarnar má greina frá árinu 2010 þegar snjalltæki og samfélagsmiðlar hófu innreið sína. Við þessu þarf að bregðast. Fram hafa komið ýmsar tillögur sem fela í sér takmörkun á símanotkun barna og aðgengi þeirra að samfélagsmiðlum. Mun minna hefur verið rætt um aðgerðir sem bæta einhverju jákvæðu og uppbyggilegu við líf barna — eins og að auka frelsi og tækifæri þeirra til að leika og læra úti. Það má gera með því að efla útinám í skólum — með öðrum orðum, flytja skólann út — og auka almennt möguleika barna til útiveru og tengsla við náttúruna. Allar námsgreinar má kenna úti Í raun má kenna allar námsgreinar úti og það er þegar gert í sumum skólum. Mikilvægt er þó að gera útinám að föstum og markvissum þætti í öllu skólastarfi. Möguleikar til útináms á Íslandi eru miklir en oft vannýttir. Í grunninn snýst útinám um að nýta nærumhverfið til náms og finna leiðir til að læra til dæmis um náttúruna í beinum tengslum við hana sjálfa. En einnig er hægt að vinna með íslensku og stærðfræði utandyra. Tungumál eflist þegar orðaforði er tengdur raunverulegum upplifunum og stærðfræðileg hugtök verða skýrari þegar hægt er að stika þau út, mæla, telja og prófa með áþreifanlegum hætti. Möguleikarnir eru nær óþrjótandi. Aukið rými fyrir athafnasöm ungmenni Skólar eiga stundum í erfiðleikum með að mæta ólíkum nemendum á þeirra eigin forsendum. Útinám hefur reynst frábær leið til að mæta athafnasömum nemendum með ríka hreyfiþörf. Úti gefst þeim tækifæri til að blómstra. Oft koma þar fram leiðtogar sem njóta sín betur en inni í hefðbundinni skólastofu. Slík reynsla hefur jafnframt jákvæð áhrif á aðra nemendur. Flest þekkjum við það að sjá samstarfsfólk í nýju ljósi eftir jákvæða upplifun í öðru umhverfi — hið sama á við um börn. Í þeirri skapandi umræðu sem nú fer fram um íslenskt skólastarf felast raunveruleg tækifæri. Þar ætti útinám að vera mikilvæg og spennandi leið til framþróunar. Nú er kjörið tækifæri til að efla útinám í menntun barna með því að gefa því aukið vægi í umræðu, í aðalnámskrá og í kennaranámi. Við vonum að mennta- og barnamálaráðherra taki útinámið upp á arma sína af sama krafti og þau verkefni sem hún hefur lagt áherslu á. Skólafólk og annað fagfólk sem hefur unnið að þessum málum er tilbúið til samtals um hvernig megi efla þetta enn frekar. Hættum að ræða hvort við eigum að fara út — og förum að ræða hvernig við flytjum íslenskt skólastarf út, okkur öllum til hagsbóta. Guðmundur Finnbogason skólastjóri, ÞjórsárskólaDr. Jakob Fríman Þorsteinsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar