Hækkun skrásetningargjalds hjá Háskóla Íslands Kristinn Snær Guðjónsson skrifar 13. febrúar 2026 13:03 Þann 12. febrúar sl. Var kosið um hækkun skrásetningargjalds þar sem niðurstaðan var að hækka skrásetningargjald Háskóla Íslands (HÍ) úr 75.000 kr í 100.000 kr. Var þetta niðurstaðan þrátt fyrir kvörtun hafi borist til Umboðsmanns Alþingis vegna gjaldsins og enn er beðið eftir áliti hans um lögmæti skrásetningagjaldsins. Haldin voru mótmæli gegn hækkuninni við rektorsskrifstofur í Aðalbyggingu HÍ og yfir þúsund einstaklingar höfðu skrifað undir undirskriftarlista gegn hækkun skrásetningargjaldsins. Engu að síður samþykkti háskólaráð Háskóla Íslands að hækka skrásetningargjaldið Einstaklingar á aldrinum 18-29 ára eru tæp 12% þeirra sem eru undir lágtekjumörkum og falla því undir skilgreininguna fátæk (hagstofa íslands, 2023). Stærsti hópur háskólanema er á þessu aldursbili og þetta eru jafnframt einstaklingar sem eru að taka sín fyrstu skref sem fullorðnir einstaklingar, með metnað til að mennta sig og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Öryrkjar fá 25% afslátt af skrásetningargjaldi HÍ. Fyrir hækkunina kostaði háskólamenntun 55 þúsund krónur á ári fyrir öryrkja sem er viðráðanlegt fyrir einstakling sem er rétt yfir lágtekjumörkum en nú er gjaldið 75 þúsund krónur á ári. Hækkun samanber t.d. matarkostnað fyrir heila viku hjá sumum, stóran hluta bókakostnaðar fyrir eina önn sumra nema, bensínkostnað á mánuði fyrir suma og svo mætti áfram telja. Þeir sem eru í náminu: starfstengt nám fyrir fólk með þroskahömlun eru líklegast einnig öryrkjar og því undir lágtekjumörkum eða rétt yfir þeim. Eiga þau sem eru á fyrsta ári í því námi að hætta því námi því það hefur ekki efni á náminu? Þessi niðurstaða um hækkun skrásetningargjalds við HÍ þýðir að nám verði óaðgengilegra fyrir þá sem eru með þroskahömlun, örorku og aðra sem eru við eða undir lágtekjumörkum. Samkvæmt lögum um samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (nr.80/2025) skal fatlað fólk eiga rétt á menntun án mismunar og á grundvelli jafnra tækifæra. Aðildarríki samningsins skulu tryggja að fatlað fólk hafi aðgang að almennu námi á háskólastigi og njóti viðeigandi aðlögunar til þess. Með því að hækka skrásetningagjald HÍ get ég ekki séð að lögin séu virt. Með hækkuninni verður afturför og fatlað fólk á enn minni möguleika á háskólamenntun á Íslandi. Höfundur er háskólanemi við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og öryrki. Heimildir Hagstofa Íslands.(2023). Lágtekjuhlutfall einstaklinga eftir kyni og aldri 2004-2023[tafla] https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Samfelag/Samfelag__lifskjor__3_fjarhagsstada__1_einstaklingar/LIF01130.px/table/tableViewLayout2/ Lög um samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks nr,80/2025 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar