Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 06:41 Donald Trump Bandarikjaforseti náðaði í gær fimm þekkta fyrrum leikmenn úr NFL-deildinni. Getty/Anna Moneymaker Donald Trump Bandaríkjaforseti náðaði í gær fimm fyrrverandi NFL-leikmenn eða þá Joe Klecko, Nate Newton, Jamal Lewis, Travis Henry og Billy Cannon heitinn.
Náðanirnar voru tilkynntar af Alice Marie Johnson, svokölluðum náðunarstjóra Hvíta hússins. „Eins og fótboltinn minnir okkur á, byggist afburðaárangur á þrautseigju, reisn og hugrekki til að rísa aftur á fætur. Það sama gildir um þjóð okkar,“ skrifaði Alice Marie Johnson á samfélagsmiðlum og þakkaði Trump fyrir. Johnson sagði að Jerry Jones, eigandi Dallas Cowboys, hefði „persónulega“ fært Newton fréttirnar en hann vann þrjá Super Bowl-titla með Kúrekunum. Today, the President granted pardons to five former NFL players—Joe Klecko, Nate Newton, Jamal Lewis, Travis Henry, and the late great Dr. Billy Cannon.As football reminds us, excellence is built on grit, grace, and the courage to rise again. So is our nation.Special thanks… pic.twitter.com/Y4FC5lQwGE— Alice Marie Johnson (@AliceMarieFree) February 13, 2026 Hvíta húsið hefur ekki gefið upp hvers vegna Trump náðaði leikmennina. Klecko, fyrrverandi stjarna New York Jets, játaði sig sekan um meinsæri árið 1993 eftir að hafa logið að alríkiskviðdómi sem rannsakaði vátryggingasvik. Klecko, sem var varnarlínumaður, var tekinn inn í frægðarhöll atvinnumanna í fótbolta árið 2023. Hann var tvisvar sinnum valinn í All-Pro lið Associated Press og fjórum sinnum í Pro Bowl. Newton, sóknarlínumaður, játaði sig sekan um alríkisákæru fyrir fíkniefnasmygl árið 2002 eftir að yfirvöld fundu tíu þúsund dollara í pallbíl hans auk 175 punda af marijúana í fylgdarbíl sem annar maður ók. Newton var tvisvar sinnum valinn í All-Pro liðið og sex sinnum í Pro Bowl. Lewis, sem áður lék með Baltimore Ravens og Cleveland Browns, játaði sig sekan í fíkniefnamáli þar sem hann notaði farsíma til að reyna að koma á fíkniefnasölu skömmu eftir að hann var valinn fimmti í nýliðavali NFL árið 2000. Hlauparinn var einu sinni valinn í All-Pro liðið, einu sinni í Pro Bowl og útnefndur sóknarmaður ársins af AP árið 2003. Henry játaði sig sekan um samsæri um kókaínsmygl árið 2009 fyrir að fjármagna fíkniefnahring sem flutti eiturlyfið milli Colorado og Montana. Hann var hlaupari fyrir þrjú lið og komst einu sinni í Pro Bowl. Cannon, sem lék með Houston Oilers, Oakland Raiders og Kansas City Chiefs, játaði sig sekan um peningafalsun um miðjan níunda áratuginn eftir að röð slæmra fjárfestinga og skulda gerðu hann gjaldþrota. Cannon var tvisvar sinnum valinn í All-Pro liðið og tvisvar í Pro Bowl. Hann vann einnig Heisman-bikarinn árið 1959 þegar hann lék með LSU-skólanum. Hann lést árið 2018. Trump, sem er mikill íþróttaáhugamaður, náðaði fyrrverandi goðsögn New York Mets, Darryl Strawberry, vegna skattsvika og fíkniefnaákæra í nóvember.
NFL Donald Trump Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Öskubuskuævintýri í gangi í París Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Sjá meira