Pepparinn og áttavitinn Guðveig Lind Eyglóardóttir og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir skrifa 13. febrúar 2026 08:01 Flokksþing Framsóknar verður haldið í Reykjavík um helgina og þar munum við kjósa okkur nýjan formann. Við systur ætlum að mæta og styðja Lilju Dögg Alfreðsdóttur til að leiða Framsókn inn í nýja og spennandi tíma – og það gerum við af mikilli sannfæringu. Margir þekkja Lilju fyrst og fremst úr stjórnmálum – reynslumikla, yfirvegaða, öfluga og málefnalega konu sem kemur vel fyrir í sjónvarpi landsmanna. En í þessum greinarstúf langar okkur að varpa ljósi á aðra hlið á henni: vinkonuna Lilju, pepparann og áttavitann. Manneskju sem stendur þétt við bakið á sínu fólki og gefur af sér kraft sem smitar út frá sér. Lilju fylgir mikill dugnaður og það er gott að leita til hennar. Hún er góður greinandi, hreinskilin og ráðagóð. Það skiptir máli þegar leitað er ráða að geta treyst því að viðmælandinn sé heiðarlegur og hafi vel stilltan innri áttavita. Lilja er einmitt þannig manneskja – djúpvitur og traust. Lilja passar upp á samböndin. Hún er sú sem tekur upp tólið að fyrra bragði, spyr hvernig gangi og meinar það. Áhugi hennar á fólki er einlægur og nær langt út fyrir stjórnmálin. Hún spyr um börnin, fjölskylduna og lífið sjálft. Hún sér manneskjuna handan hlutverka og titla. Í mótvindi hefur hún verið pepparinn – hvatt okkur til að halda áfram, gera betur, standa saman og láta ekki slá okkur út af laginu. Hún nýtur þess að sjá fólk eflast og vaxa í kringum sig og það er einkenni sannra leiðtoga. Lilja er djúpþenkjandi og fróð um heimssöguna, en hún er einnig mannlegt uppflettirit um sögu Framsóknar. Hún þekkir bæði sigrana og sorgirnar og skilur hvernig sú saga getur orðið grunnur að sterkari framtíð. Öll hennar mikla þekking og reynsla, ásamt mannlegum styrk hennar, gerir hana að leiðtoga sem getur byggt flokkinn áfram af festu og framsýni. Við styðjum Lilju Dögg Alfreðsdóttur vegna þess að hún sameinar kraft, visku og hlýju. Hún er pepparinn sem heldur hópnum saman. Leiðtoginn og áttavitinn sem Framsókn þarf á að halda. Guðveig er oddviti Framsóknar í Borgarbyggð og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir er fyrrverandi starfsmaður þingflokks Framsóknar og aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar sem heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Guðveig Lind Eyglóardóttir Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Flokksþing Framsóknar verður haldið í Reykjavík um helgina og þar munum við kjósa okkur nýjan formann. Við systur ætlum að mæta og styðja Lilju Dögg Alfreðsdóttur til að leiða Framsókn inn í nýja og spennandi tíma – og það gerum við af mikilli sannfæringu. Margir þekkja Lilju fyrst og fremst úr stjórnmálum – reynslumikla, yfirvegaða, öfluga og málefnalega konu sem kemur vel fyrir í sjónvarpi landsmanna. En í þessum greinarstúf langar okkur að varpa ljósi á aðra hlið á henni: vinkonuna Lilju, pepparann og áttavitann. Manneskju sem stendur þétt við bakið á sínu fólki og gefur af sér kraft sem smitar út frá sér. Lilju fylgir mikill dugnaður og það er gott að leita til hennar. Hún er góður greinandi, hreinskilin og ráðagóð. Það skiptir máli þegar leitað er ráða að geta treyst því að viðmælandinn sé heiðarlegur og hafi vel stilltan innri áttavita. Lilja er einmitt þannig manneskja – djúpvitur og traust. Lilja passar upp á samböndin. Hún er sú sem tekur upp tólið að fyrra bragði, spyr hvernig gangi og meinar það. Áhugi hennar á fólki er einlægur og nær langt út fyrir stjórnmálin. Hún spyr um börnin, fjölskylduna og lífið sjálft. Hún sér manneskjuna handan hlutverka og titla. Í mótvindi hefur hún verið pepparinn – hvatt okkur til að halda áfram, gera betur, standa saman og láta ekki slá okkur út af laginu. Hún nýtur þess að sjá fólk eflast og vaxa í kringum sig og það er einkenni sannra leiðtoga. Lilja er djúpþenkjandi og fróð um heimssöguna, en hún er einnig mannlegt uppflettirit um sögu Framsóknar. Hún þekkir bæði sigrana og sorgirnar og skilur hvernig sú saga getur orðið grunnur að sterkari framtíð. Öll hennar mikla þekking og reynsla, ásamt mannlegum styrk hennar, gerir hana að leiðtoga sem getur byggt flokkinn áfram af festu og framsýni. Við styðjum Lilju Dögg Alfreðsdóttur vegna þess að hún sameinar kraft, visku og hlýju. Hún er pepparinn sem heldur hópnum saman. Leiðtoginn og áttavitinn sem Framsókn þarf á að halda. Guðveig er oddviti Framsóknar í Borgarbyggð og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir er fyrrverandi starfsmaður þingflokks Framsóknar og aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar sem heilbrigðisráðherra.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar