„Klúðraði þessu svolítið vel í dag“ Sindri Sverrisson skrifar 12. febrúar 2026 15:48 Kristrún Guðnadóttir var skiljanlega miður sín yfir því hvernig fór í dag. Getty/Alex Slitz „Ég var bara brjáluð,“ segir Kristrún Guðnadóttir um það hvernig var að átta sig á því að hún hefði gert afar dýrkeypt mistök á Vetrarólympíuleikunum í dag. Röng beygja þýddi að hún var dæmd úr keppni, í 10 kílómetra skíðagöngunni.
Þegar Kristrún uppgötvaði mistök sín var í raun of seint að snúa við. Hana langaði þá mest að hætta strax en skíðaði í mark, bálreið út í sjálfa sig. Þó að flestir fái aldrei að keppa á Ólympíuleikum, hvað þá tvisvar eins og Kristrún, þá eru vonbrigðin í Val di Fiemme í dag slík að hún á erfitt með að kyngja þeim. „Þetta eru sem sagt þrír mismunandi hringir sem við förum. Ég var svo sem komin með þetta á hreint fyrir startið, en í öðrum hring er ég orðin svo þreytt og tek vitlausa beygju á einum stað,“ segir Kristrún og talar hreint út. „Þetta á ekki að gerast“ „Ég fattaði þetta smástund seinna en það má eiginlega ekki fara til baka. Ég hitti þjálfarann minn og spurði hvað ég ætti að gera og hann sagði mér að fara bara í mark. En ég vissi alveg að ég yrði dæmd úr leik. Ég fór bara of stutt, óvart. Maður er bara svo ógeðslega þreyttur að maður nær ekki að hugsa skýrt. Þetta er partur af þessu en ég klúðraði þessu svolítið vel í dag.“ „Maður eyddi öllum gærdeginum og upphituninni í að finna út úr þessu. Þetta á ekki að gerast. En þegar maður er með 195 í púls og nær ekki að hugsa, þá gerist þetta,“ bætir hún við. Kristrún keppti líka í sprettgöngu á leikunum í ár og varð þar í 61. sæti.Getty/Tom Weller Keppendur í 10 km göngu eru ræstir út á mismunandi tíma, einn í einu, og Kristrún uppgötvaði mistök sín þegar hún sá allt í einu keppanda fyrir framan sig sem hafði verið ræstur af stað talsvert á undan henni. Hvernig varð henni þá við? Skíðaði best eftir mistökin „Ég var bara brjáluð. Ég skíðaði örugglega best síðustu tvo kílómetrana, því ég var svo pirruð. Ég ætlaði fyrst bara að hoppa út af en þjálfarinn vildi að ég kláraði og ég ákvað að gera það. En það fara margar hugsanir í gegnum hausinn, þegar maður er búinn að leggja á sig fáránlega mikla vinnu, er í góðu standi og klúðrar þessu svo á að taka vitlausa beygju,“ segir Kristrún. Óljóst er hvar hún hefði getað endað en Kristrún var með rásnúmer 98 og hefði líklega getað endað nálægt því sæti. „Ég var ekkert að eiga göngu lífs míns en það hefði verið gaman að klára þetta almennilega og sýna hverju maður er búinn að vera að vinna í. Það er svekkjandi að hafa hent þeim möguleika út um gluggann. Ég þarf að melta þetta í dag og horfa svo fram á við.“ „Vona að ég nái að gleyma þessu“ Kristrún hefur nú lokið keppni á leikunum á Ítalíu, þar sem hún keppti einnig í sprettgöngu og varð þar í 61. sæti. Þetta voru hennar aðrir Ólympíuleikar því hún var einnig með í Peking fyrir fjórum árum. Hún er óviss um leikana í frönsku Ölpunum 2030 en er alls ekki hætt. Kristrún er ákveðin í að keppa á HM á næsta ári.Getty/IOC „Ég ákvað fyrir fjórum árum að ég ætlaði að mæta í besta formi lífs míns á þessa leiki. Ég hef lagt allt í það og finnst ég þannig séð hafa náð því. Það eru ótrúlega margir klukkutímar og mikil vinna sem liggja á bakvið þetta. Og það er alveg búið að vera magnað að vera hérna, og ég er mjög þakklát og stolt af vinnunni bakvið þetta, en maður er með svo mikið keppnisskap og vill alltaf meira,“ segir Kristrún sem býr að því að hafa afar gott bakland. „Ég er með ellefu manns hérna að horfa á mig. Fjölskylduna mína sem er langbest. Ég er ótrúlega þakklát fyrir stuðningsnetið mitt. Ég er að fara út að borða með þeim og ætla aðeins að njóta lífsins eftir marga mánuði af æfingum. Ég vona að ég nái að gleyma þessu og svo fer ég aftur til Noregs og held áfram að keppa út tímabilið. Svo byrjar maður bara að æfa fyrir HM á næsta ári. Ég er alls ekki búin að fá nóg.“
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Fleiri fréttir Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Sjá meira