Söfnun til handa fjölskyldu van der Beek fer fram úr björtustu vonum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. febrúar 2026 07:24 Kimberly og James van der Beek með dóttur sína Oliviu árið 2011. Getty Söfnun til handa fjölskyldu leikarans James van der Beek hefur farið fram úr björtustu vonum en eins og stendur hefur safnast 1,1 milljónir dala á aðeins tólf klukkustundum.
Leikarinn lést snemma í gærmorgun en hann greindist með 3. stigs ristilkrabbamein árið 2023. Efnt var til söfnunar til handa eiginkonu van der Beek og barna þeirra á Go Fund Me í kjölfarið en hjónin höfuð verið mjög opin með það að krabbameinsmeðferðin hefði tekið sinn toll fjárhagslega og þá hafði van der Beek neyðst til að selja ýmsa muni sem hann hafði varðveitt frá dögum sínum sem leikari, meðal annars í Dawson's Creek. Söfnunin hófst fyrir tólf klukkustundum og eftir því sem næst verður komist var upphaflega takmarkið 350 þúsund dalir. Þúsundir lögðu söfnuninni lið á örfáum klukkustundum og markið var hækkað í 500 þúsund, svo 700 þúsund og næst eina milljón. Sem stendur er það 1,3 milljónir dala en söfnunin stendur, sem fyrr segir, í 1,1 milljón dala. Alls hafa yfir 21 þúsund einstaklingar og aðilar gefið til söfnunarinnar og einstaka framlög numið allt að 25 þúsund dölum. Samkvæmt texta á söfnunarsíðunni berst fjölskyldan nú meðal annars fyrir því að halda heimili sínu og verða fjármunirnir notaðir til að standa straum af daglegum útgjöldum, menntun barnanna og til að tryggja þeim stöðugleika á þessum erfiðu tímum.
Hollywood Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira