Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 11. febrúar 2026 21:31 Menntaverðlaun Suðurlands fóru til Grunnskólans á Hellu en hér eru þau Ragnheiður Gísladóttir, kennari og Kristinn Ingi Austmar Guðnason, aðstoðarskólastjóri með verðlaunaskjalið og blóm. Magnús Hlynur Hreiðarsson Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka.
Hátíðarfundur Vísinda- og rannsóknasjóðs Suðurlands fór fram á Hótel Selfossi í gær þar, sem tveimur styrkjum var úthlutað úr sjóðnum, auk þess sem Menntaverðlaun Suðurlands voru afhent. Það kom í hlut Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands að afhenda verðlaunin. Styrkina fengu þær Piia Tomingas, doktorsnemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands og Þorbjörg Anna Gísladóttir, doktorsnemandi við Háskóla Íslands. Verkefni Piiu er rannsókn um hvernig vindborið steinefnaryk, ásamt framleiðslu og endurheimt votlendis mótar vatnalíf og hryggleysingjasamfélög í votlendi á Suðurlandi. Verkefni Þorbjargar Önnu snýst um að rannsaka gossögu og uppruna bergs í Heklu og Vatnafjöllum, sérstaklega þá eldvirkni sem átti sér stað fyrir meira en 11 þúsund árum. Styrkina fengu þær Piia Tomingas, doktorsnemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands og Þorbjörg Anna Gísladóttir, doktorsnemandi við Háskóla Íslands. Þær eru hér, ásamt frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands og Sveini Aðalsteinssyni, formanni stjórnar Vísinda- og rannsóknarsjóðsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson Framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga tilkynnti svo hvert Menntaverðlaun Suðurlands færu vegna ársins 2025. „Íslenskuskólinn, hagnýt orðakennsla í ÍSAT við Grunnskólann á Hellu. Verkefni sem miðar að því að þróa og prófa nýtt kennslulíkan í íslensku, sem annað mál fyrir tví og fjöltyngda nemendur,” sagði Ingunn. Að sjálfsögðu eru kennarar skólans stoltir af verðlaununum en Ragnheiður Gísladóttir hefur haldið utan um verkefnið. „Við stofnuðum Íslenskuskóla, sem er hugsaður fyrir nemendur, sem eru fæddir á Íslandi en tala annað tungumál heima en íslensku,” segir Ragnheiður. Um 190 nemendur eru í Grunnskólanum á Hellu en í íslensku skólanum eru 40 nemendur, sem mæta tvisvar til fjórum sinnum í viku og fá orðaforðakennslu. En hvað finnst nemendum erfiðustu orðin? „Það eru eins og til dæmis eldgos, að stökkva, að labba, það eru svona alls konar orð, sem þeim finnst vera erfið og þá er ég bara að skýra þau með myndum,” segir Ragnheiður. Á hátíðarfundinum vakti eitt atriði sérstaklega athygli gesta en það var hljómsveit, sem er eingöngu skipuð stelpum úr Hvolsskóla á Hvolsvelli en þær spiluðu tvö lög. Stelpurnar í Hvolsskóla, sem spiluðu tvö lög við athöfnina fengu að sjálfsögðu mynd af sér með forseta Íslands.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sigurður Böðvarsson, framkvæmdastjóri lækninga og sjúkrahússviðs Heilbrigðisstofnunar Suðurlands var fundarstjóri á hátíðarfundinum og fórst það hlutverk vel úr hendi.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Rangárþing ytra Landbúnaður Vísindi Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira