Ekkert um að semja? Pawel Bartoszek skrifar 11. febrúar 2026 13:32 Ég vil byrja á því að taka fram að ég tel það ekki vera forsendu þess að Ísland gangi inn í Evrópusambandið að landið verði varanlega undanþegið þeim lögum sem þar gilda, að hluta eða heild. Almennt tel ég að þau lög sem eiga uppruna sinn að rekja til Evrópu, og við höfum tekið upp í íslenskt lagasafn í gegnum EES-samninginn, hafi fremur bætt íslenskt samfélag en hitt. Sá ávinningur sem sem felst síðan í aðgengi að innri markaðnum, er loks ótvíræður. Haldi fólk því hins vegar fram að um ekkert sé að ræða í aðildarviðræðum, að Evrópusambandið taki aldrei tillit til hagsmuna aðildarríkja sinna og að engin fordæmi séu fyrir lausnum sem koma til móts við aðstæður á hverjum stað, þá geymir sagan mörg mótdæmi um annað. Vissulega er það svo að í nýlegum stækkunum Evrópusambandsins sömdu flest ríki um tímabundnar undanþágur, frá tveimur upp í tólf ár, til dæmis þegar kom að jarðakaupum eða fjárfestingum almennt. Hafa ber þó í huga sögulegt samhengi. Þegar hin stóra stækkun ESB átti sér stað árið 2004 höfðu flest ríkin verið kommúnistaríki, föst röngu megin járntjaldsins. Þau vildu hraða ferð sinni inn í Evrópusambandið og voru ekki að sækjast eftir sérmeðferð eða varanlegum undanþágum. Þau vissu að afsláttur af skyldum gæti falið í sér afslátt af réttindum, og ekkert þessara ríkja hafði áhuga á að vera annars flokks aðildarríki. En samningsstaða allra ríkja sem gengu í sambandið 2004 var ekki sú sama. Malta var ekki fyrrum kommúnistaríki. Þegar Malta gekk í ESB höfðu heimamenn áhyggjur af því að erlendir aðilar gætu keypt upp íbúðir á eyjunni með neikvæðum afleiðingum fyrir húsnæðisöryggi heimamanna. Malta fékk því undanþágu frá meginreglum Evrópusambandsins og ákveðnar takmarkanir, svo sem búsetuskilyrði, voru settar á fasteignakaup á eyjunni. “Hvenær féll sú undanþága úr gildi? gæti einhver spurt. Svarið er að hún gildir enn. Að sama skapi höfðu menn áhyggjur af áhrifum ESB-aðildar á maltverskan sjávarútveg. Fundin var sérlausn sem kom til móts við þessar áhyggjur. Hún er nú hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB en er skrifuð í viðauka við aðildarsamning Möltu. Líkt og með undanþáguna vegna fasteignakaupanna hefur þessi sérlausn haldið allan tímann frá því að Malta gekk í sambandið og gildir enn. Hér skal ekki fjallað um það hvort sérlausnir eins og þær sem Malta fékk myndu henta Íslandi eða hvort falast ætti eftir slíkum eða sambærilegum sérlausnum ef til viðræðna kæmi. En ef íslenskir ESB-andstæðingar hefðu verið Möltu til ráðgjafar í upphafi aldarinnar, þá hefðu þeir væntanlega allir gefið sömu ráð: “Þetta yrðu ekki viðræður. Það yrðu engar undanþágur og engar sérlausnir í boði, og jafnvel þótt þær fengjust myndu þær aldrei halda.” Raunin varð önnur: Þau sem stjórnuðu á Möltu fengu umboð í þingkosningum til að fara í viðræður, gerðu það og komu heim með aðildarsamning sem þjóðin samþykkti. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla sem framundan er snýst um umboð til að gera einmitt þetta. Hún snýst um umboð til að leiða viðræður til lykta og bera svo endanlegan aðildarsamning undir þjóðina. Það er, í alvörunni, ekkert sérstaklega flókið við það. Höfundur er þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pawel Bartoszek Utanríkismál Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar