Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 10:02 Svipmyndir frá Hellfoss sem fór fram á Selfossi um helgina og þeim Rúnari Hroða og Davíð Lúther undirrita samning um áframhald hátíðarinnar í miðbænum næstu 666 árin. Aðalsteinn Valur Grétarsson Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss.
Einkaþjálfarinn Rúnar Hroði Geirmundsson ákvað á síðasta ári að taka málin í eigin hendur frekar en að bíða eftir því að aðrir myndu auðga grósku metalsenunnar með nýrri metal-hátíð og stofna rokkhátíðina Hellfoss. Hátíðin fór fram um helgina á tónleikastaðnum Sviðinu og á Miðbar í miðbæ Selfoss og komu þrettán hljómsveitir fram. Skipuleggjendur eru í skýjunum með velgengnina. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum. Hátíðin var uppseld, stemningin frábær og framkvæmdin til fyrirmyndar,“ segir Rúnar um hátíðina. Dr. Spock trylltu lýðinn.Aðalsteinn Valur Grétarsson Gestir hátíðarinnar komu víða að, bæði alls staðar af landinu sem og erlendis frá. Meðal gesta voru rokkunnendur frá Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Bandaríkjunum sem höfðu rekist á hátíðina á netinu og lögðu leið sína til Íslands sérstaklega til að sækja hátíðina. „Það var ótrúlegt að sjá þetta gerast strax á fyrsta ári og sýnir að hátíðin hefur burði til að vaxa enn frekar,“ segir Rúnar. Rúnar Hroði og Davíð Lúther undirrituðu samning til 666 ára.Aðalsteinn Valur Grétarsson Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði samning til 666 ára um að HELLFOSS verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. Með því er framtíð hátíðarinnar tryggð á sama stað og ljóst að HELLFOSS er komin til að vera. Öskrað í míkuna.Aðalsteinn Valur Grétarsson Dr. Spock trylltu lýðinn.Aðalsteinn Valur Grétarsson Rúnar Hroði steig sjálfur á svið.Aðalsteinn Valur Grétarsson Eitt gott crowd-sörf.Aðalsteinn Valur Grétarsson Það var slammað.Aðalsteinn Valur Grétarsson Öskrað í míkuna.Aðalsteinn Valur Grétarsson Finni á Prikinu alltaf jafn vígalegur.Aðalsteinn Valur Grétarsson
Menning Árborg Samkvæmislífið Tónlist Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira