Bad Bunny hljóp lengra en lið Patriots Valur Páll Eiríksson skrifar 9. febrúar 2026 14:01 Söngvarinn skipti boltanum út fyrir fána Púertó Ríkó undir lok sýningar. Hann hafði þá hlaupið yfir 100 stikur með boltann. Kevin Sabitus/Getty Images Margt hefur verið rætt og ritað um hálfleikssýningu tónlistarmannsins Bad Bunny á Ofurskálinni í San Francisco í Bandaríkjunum í nótt. Ein staðreynd um sýninguna setur slaka frammistöðu New England Patriots í samhengi.
Tugir milljóna horfðu á hálfleikssýningu púertóríkanska Grammy-verðlaunahafans sem fór öll fram á spænsku í óþökk Donalds Trump, Bandaríkjaforseta. Söngvarinn hóf sýninguna með bolta í höndunum og hélt á honum lengi vel á meðan sýningunni stóð. Bandarískar tölfræðiveitur tóku saman að hann hafi alls hlaupið yfir 120 stikur með boltann um völlinn á meðan hann söng. Bad Bunny hljóp því með boltann 40 stikum lengra en allt lið New England Patriots gerði í leiknum gegn ógnvænlegri vörn Seattle Seahawks sem hreinlega kæfði alla sóknartilburði þeirra fyrrnefndu. Samtals hlupu leikmenn New England með boltann 79 stikur, Drake Maye fór lengst (37) og hlaupararnir Rhamondre Stevenson og Treyveon Henderson komust 23 og 19 stikur áfram með boltann í leiknum. Geta má þess að Kenneth Walker III, hlaupari Seahawks, fór með boltann 135 stikur einn síns liðs í leiknum. Hann var valinn maður leiksins. Seahawks unnu leikinn 29-13 og urðu NFL-meistarar í annað sinn í sögu félagsins.
NFL Ofurskálin Bandaríkin Púertó Ríkó Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira