Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 11:28 Róstursamt hefur verið í Háskólanum á Biförst undanfarna mánuði. Vísir/Vilhelm Stjórnendur Háskólans á Bifröst eru sagðir hafa beitt einstaka nemendur „ótilhlýðilegum“ þrýstingi til þess að styðja Margréti Jónsdóttur Njarðvík í yfirlýsingu stjórnar nemendafélags skólans. Hún vill að stjórn skólans skerist í leikinn.
Spenna hefur ríkt innan veggja Háskólans á Bifröst vegna siðanefndarmáls gegn þremur kennurum sem Margrét rektor hóf í nóvember. Félag akademískra starfsmanna við Bifröst lýsti vantrausti á rektor, rannsóknarstjóra og forseta viðskiptadeildar vegna þess. Siðanefndin hreinsaði kennarana um sökum um að hafa verið ranglega skráðir meðhöfundar að fræðigreinum á föstudag. Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst segist nú hafa öruggar upplýsingar um að stjórnendur, sem hún nefnir ekki á nafn, hafi haft samband við einstaka nemendur og beitt þá ótilhlýðilegum þrýstingi í þeim tilgangi að tryggja rektor stuðning. „Slík vinnubrögð eru með öllu óásættanleg,“ segir í yfirlýsingu stjórnar nemendafélagsins. Stjórnin grípi tafarlaust inn í Stjórn nemendafélagsins segir stjórnendur háskólans ekki eiga að nýta stöðu sína til þess að þrýsta á nemendur og hafa þannig áhrif á sjálfstæða skoðanamyndun þeirra. „Við lítum á þessi brot alvarlegum augum. Í ljósi þessa krefst Nemendafélagið þess að stjórn Háskólans á Bifröst grípi tafarlaust inn í, tryggi vinnufrið nemenda og stöðvi þessa aðför að tjáningarfrelsi innan skólans.“ Háskólinn sendi fjölmiðlum yfirlýsingu stjórnar skólans í morgun þar sem fram kom að stjórnin gerði engar athugasemdir við störf rektors eða tveggja stjórnenda sem áttu þátt í siðanefndarmálinu. Það gæti ekki talist „aðför“ að vísa máli til siðanefndar. Virðist stjórnin þar vísa til harðrar gagnrýni akademísks starfsfólks háskólans við siðanefndarmálinu. Margrét rektor hefur ekki viljað veita fréttastofu viðtal síðustu vikur. Hún sagði við Ríkisútvarpið á föstudag að niðurstaða siðanefndarinnar væri afskaplega góð fyrir alla aðila. „Hún er sú besta sem við gátum fengið, því allir vinna þegar enginn tapar,“ sagði rektorinn sem starfsmenn lýstu vantrausti á. Einn kennaranna þriggja sem var vísað til siðanefndar var rekinn í sömu viku og honum var sagt frá ásökununum í nóvember. Það var á þeim forsendum að hann hefði gerst sekur um trúnaðarbrot með því að kenna áfanga við Háskólann á Akureyri.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira