Fyrstu íslensku ÓL-feðginin: „Draumur sem ég vissi varla að væri til“ Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 12:01 Sonja Lí Kristinsdóttir og Kristinn Magnússon brosmild á HM ungmenna í Tarvisio í fyrra. Facebook/@kiddimagnusson Sonja Lí Kristinsdóttir er óvænt á leið til keppni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu og fetar þar með í fótspor föður síns, Kristins Magnússonar, sem keppti á leikunum í Salt Lake City árið 2002. Þau hittast í Cortina á morgun.
Sonja vissi að hún væri fyrsti varamaður hjá íslenska landsliðinu en Kristinn segir að eftir því sem nær hafi dregið leikunum, og þátttökuþjóðirnar staðfest hvaða sæti þau vildu þiggja, hafi í raun vonin verið úti um að hún fengi að fara á leikana. Það breyttist hins vegar snarlega og Kristinn fékk mikið gleðisímtal í gærkvöld frá dóttur sinni, sem búsett er í Noregi. Sjálfur býr Kristinn á Akureyri en er einnig þjálfari og var á leiðinni á leikana sem slíkur fyrir Íslands hönd í kvöld. Það að fá nú að hitta dóttur sína þar og sjá hana keppa á stærsta sviði íþróttanna er þannig í raun bónus. Risavaxinn bónus. „Þetta var mjög gleðilegt og tók smástund að átta sig á þessu. Það er búið að standa til í nokkrar vikur að ég færi á leikana sem þjálfari. Það gerir þetta extra skemmtilegt,“ sagði Kristinn við Vísi í dag. „Hún hringdi í okkur í gærkvöld þegar hún fékk þessar fréttir frá Skíðasambandinu og var náttúrulega í skýjunum með allt saman. Setti öll plön fyrir næstu tvær vikur bara á bið enda er þetta aðeins meira spennandi,“ sagði Kristinn léttur. Kristinn Magnússon keppti á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City árið 2002. Eins og fyrr segir er um fyrstu íslensku ÓL-feðginin að ræða en frá þessu greindi Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður RÚV og sagnfræðingur. Íslenskir feðgar, mæðgur og mæðgin hafa keppt á Ólympíuleikum en hópurinn er ekki stór samkvæmt lista Þorkels. Í honum eru Vilhjálmur Einarsson og Einar Vilhjálmsson, Valdimar Örnólfsson og Örnólfur Valdimarsson, Geir Hallsteinsson og Logi Geirsson, Atli Hilmarsson og Arnór Atlason, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og börn hennar Bryndís Ólafsdóttir og Magnús Már Ólafsson og skíðafeðgarnir Jón Karl Sigurðsson og Sigurður Jónsson. „Það er stórkostlegt að þetta skuli verða að veruleika. Þetta er einhver draumur sem ég vissi bara varla að væri til. Sturluð staðreynd,“ sagði Kristinn sem vissi þó vel að Sonja gæti átt eftir að fara á Vetrarólympíuleika eins og hann. „Tilfinningarússíbani að vera þarna“ „Auðvitað hefur hún stefnt á þetta og haft þetta að langtímamarkmiði en þetta var svolítið fjarlægt fyrir þessa leika. Líklegra næst. En þetta er draumur fyrir alla. Hún hellti sér út í skíðin og flutti þess vegna til Noregs fyrir fjórum árum, og fór að æfa þar með menntaskóla.“ Það má alveg ætla það að pabbasögur frá Salt Lake City hafi smitað Sonju af áhuga, eða hvað? Kristinn vill þó ekki gera of mikið úr því: „Jú, við höfum alveg rætt þetta í gegnum tíðina. Auðvitað hefur maður áhrif á krakkana sína með því að vera einhver fyrirmynd. Þetta er algjör tilfinningarússíbani að vera þarna,“ sagði Kristinn. Nú fær dóttir hans að fara ferð í einum slíkum og það með pabba með sér en þau ættu að hittast í Cortina annað kvöld.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Bara einn í flugvélinni heim af HM Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Dagskráin: Stjarnan í Evrópu, N1-mót drengja og Besta kvenna aftur af stað Haaland orðinn stærri en Manchester City Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Breskur ævintýramaður í undanúrslit á Wimbledon Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Sjá meira