Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 07:32 Þegar netsvik eru annars vegar er einn viðkvæmasti hópurinn eldra fólk og einstaklingar sem þarfnast umönnunar. Tölfræðin sýnir að einstaklingar 65 ára og eldri verða fyrir mun hærra meðaltjóni í slíkum svikum en aðrir aldurshópar, oft tvö- til þrefalt hærra, þar sem slíkar svikagreiðslur eru oft óafturkræfar. Sérfræðingar hafa bent á að áhættuna megi m.a. rekja til félagslegrar einangrunar innan þessa hóps og rótgróins trausts sem hann ber til stofnana og fyrirtækja. Áhættan eykst með hverju árinu enda fleygir tækninni fram og svokölluð fjárfestasvindl, ástarsvindl og fleiri tegundir netsvindla spretta fram. Ekki er t.d. langt síðan fréttir bárust af komu erlends glæpahóps til landsins gagngert í þeim tilgangi að hafa fé af eldri borgurum. Nýverið kom upp mál hérlendis þar sem einstaklingur yfir áttrætt hafði lent í klóm netsvindlara sem höfðu af viðkomandi tugi milljóna króna yfir nokkurra ára tímabil. Tvær fasteignir einstaklingsins voru seldar á nauðungaruppboði. Nokkrum mánuðum áður hafði viðskiptabanki viðkomandi til áratuga sagt honum upp viðskiptum vegna peningaþvættisreglna í kjölfar fjölda óeðlilegra millifærslna erlendis án nægjanlegs rökstuðnings. Þá hafði viðkomandi hætt að greiða hefðbundna reikninga og afborganir húsnæðislána. Þar að auki hafði viðkomandi tekið út háar fjárhæðir í erlendri mynt úr hraðbönkum yfir langt tímabil sem sendar voru erlendis með pósti. Engan í fjölskyldu viðkomandi óraði fyrir því sem í gangi var og það var ekki fyrr en framkvæmdastjóri póstsendingarþjónustu setti sig í samband við einn ættingja og lét vita að hann hefði áhyggjur af því að það væri eitthvað í gangi með fjölda sendinga viðkomandi, að viðvörunarbjöllur nákominna fóru að hringja. Við tóku aðgerðir aðstandenda við að reyna að afla upplýsinga, bjarga verðmætum og semja við kröfuhafa en tjónið fyrir viðkomandi var engu að síður gífurlegt. Eftir stendur einstaklingur þjakaður af skömm og ótta og aðstandendur með ótal spurningar - hvers vegna lét enginn vita? Hvers vegna var enginn hjá (fyrrum) viðskiptabanka viðkomandi sem lét aðstandendur vita? Hvers vegna var enginn hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem lét vita um fyrirhugaðar uppboðsaðgerðir á íbúðarhúsnæði einstaklings á níræðisaldri? Svörin sem fengust frá báðum aðilum voru á þá leið að persónuverndarlög girtu fyrir það, jafnvel þótt starfsfólk þessara aðila hafi verið fullmeðvitað um hve alvarleg sviðsmynd var að teiknast upp. Undanfarin ár hefur persónuverndarlöggjöf leikið stórt hlutverk í starfsemi fyrirtækja og stofnana, en persónuverndarlögum er ætlað að tryggja hagsmuni og réttindi einstaklinga. Á sama tíma virðist hafa skapast sérkennileg framkvæmd - að aðgerðarleysi skuli viðhaft í nafni persónuverndar - jafnvel þegar hætta er augljós og greinanleg, skaði fyrirsjáanlegur og yfirstandandi í lengri tíma og einstaklingar í áhættuhópi berskjaldaðir. Í augum undirritaðrar bendir þetta til kerfisvanda, þar sem aðgerðarleysi er réttlætt með vísan til lögfylgni. Í lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga má finna skýra vinnsluheimild þegar upp koma tilvik sem þessi. Í 4. tölul. 9. gr. laganna er tiltekið að vinnsla persónuupplýsinga sé heimil þegar vinnslan er „nauðsynleg til að vernda brýna hagsmuni hins skráða eða annars einstaklings“, s.s. þegar viðkomandi er talinn ófær um að veita samþykki. Sem dæmi má nefna þegar einstaklingur týnist þá kann að vera lýst eftir honum með tilheyrandi útlitslýsingum, upplýsingum um ferðir hans og annað sem skipt getur máli, til dæmis ef viðkomandi er veikur andlega eða líkamlega. Í slíkum tilvikum er almennt ekki vafi á því hvort heimilt sé að birta persónuupplýsingar viðkomandi, enda er gengið út frá því að einstaklingurinn sé ekki fær um að veita samþykki sitt. Hvernig lítur þetta þá við ef einstaklingur virðist „heillum horfinn“? Fjármálafyrirtæki búa yfir flóknum kerfum sem greina óvenjulega og breytta hegðun viðskiptavina og bera ríkar skyldur samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti. Þegar slík kerfi nema viðvarandi og verulega frávikshegðun, er eðlilegt að spurt sé hvort viðeigandi verkferlar og áætlanir séu til staðar – ekki aðeins til að vernda kerfið heldur einstaklinginn sjálfan. Það er vafasöm framkvæmd þegar stofnanir og fyrirtæki kjósa að viðhafast ekki í tilvikum sem þessum, af ótta við persónuverndarlög eða tengda löggjöf. Íslensk lög banna ekki aðgerðir í þágu verndar einstaklingsins – hún krefst þess aftur á móti að þær séu málefnalegar og gætt sé meðalhófs. Þegar stofnanir velja að túlka reglur þannig að ekkert skuli aðhafst í tilvikum sem þessum, er vandséð hvernig það er í nafni persónuverndar viðkomandi, heldur þvert á móti virðist það vegna áhættustýringar viðkomandi stofnunar þar sem einstaklingurinn er látinn bera alla áhættuna. Þetta er sérstaklega varhugavert í ljósi þess að eldri borgarar eru einn viðkvæmasti hópurinn gagnvart misnotkun. Í framangreindu máli hér á landi, af skólabókarætt, birtist þessi framkvæmd í sinni skýrustu mynd. Önnur dæmi sem höggva í sama knérunn, þó í aðeins öðru lagaumhverfi, hafa komið upp hérlendis, t.a.m. í Súlunesmálinu svokallaða, þegar kerfið virtist þeirrar skoðunar að ekki væri heimilt að aðhafast lögum samkvæmt þegar augljós merki voru til staðar um misbeitingu gagnvart eldri einstaklingi, með skelfilegum afleiðingum. Vandamálin birtast þannig í því að stofnanir vilja forðast lagalega áhættu, og telja öruggara að miðla engum upplýsingum fremur en að miðla þeim og eiga á hættu að brjóta persónuverndarlög. Heimildin var vissulega til staðar í framangreindu máli. Rauði þráður persónuverndarlaga byggir á mannréttindum í þágu einstaklingsins og því öllu snúið á hvolf þegar vísað er til slíkra sjónarmiða til stuðnings því að aðhafast ekkert. Ef fyrir liggur skýr vísbending um að einstaklingur sé að verða fyrir verulegu fjártjóni vegna misnotkunar eða svika, og er ófær um að verja sig, þá er réttlætanlegt, eðlilegt og brýnt að miðla upplýsingum þar um til aðstandenda ef við á eða yfirvalda til að vernda þessa brýnu hagsmuni viðkomandi. Ofbeiting laga í framkvæmd er raunveruleg áhætta og þegar hún leiðir til aðgerðarleysis kerfislega mikilvægra stofnana samfélagsins verður kerfið hluti vandans. Persónuvernd er ekki ætlað það hlutverk að vera skjöldur gegn ábyrgð, heldur rammi sem ætlað er að styðja við friðhelgi og mannlega reisn, ekki síst þeirra sem standa höllum fæti. Höfundur er lögmaður og eigandi á LEX lögmannsstofu Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Netglæpir Netöryggi Efnahagsbrot Mest lesið Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Mannréttindasvikarar Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – breytingar til hagsbóta fyrir neytendur? Tinna Björk Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fullveldið og 27. greinin Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson skrifar Skoðun Byggjum framtíð á ís – fyrir börnin okkar og samfélagið allt Anna Maria Hedman skrifar Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gerum okkar besta Ólafur Helgi Jóhannsson skrifar Skoðun Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald skrifar Skoðun Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hag(ó)stjórnin Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar við hugum að líðan styrkjum við allt samfélagið Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Mannréttindasvikarar Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar orð verða vopn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Reykjavík situr föst – og biðin er orðin stefna Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Sterk sýn dugar ekki ef enginn hlustar Rúna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar sem lykilþáttur í uppvexti ungmenna Rebekka Ósk Friðriksdóttir skrifar Skoðun Austurland er þjóðinni mikilvægt Heimir Snær Gylfason skrifar Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem velur framþróun yfir stöðnun Benóný Valur Jakobsson skrifar Skoðun Græna gímaldið: Minnisvarði um glötuð tækifæri Davíð Bergmann skrifar Skoðun Grásleppufrumvarpið er mikil afturför Jens Guðbjörnsson skrifar Skoðun Lest í stað Borgarlínu? Runólfur Ágústsson,Orri Björnsson,Kjartan Már Kjartansson skrifar Sjá meira
Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar
Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar
Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun