Birtu ekki baulið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. febrúar 2026 13:44 JD Vance og eiginkona hans Usha Bala Vance voru viðstödd opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna. EPA/PETER KNEFFEL Áhorfendur á Vetrarólympíuleikunum bauluðu einhverjir á bandaríska varaforsetann JD Vance þegar hann var viðstaddur opnunarhátíð leikanna í Mílanó í gær. Ekki mátti heyra baulið í útsendingu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC og þulir þar gáfu því engan gaum, þó hið gagnstæða ætti við um kanadíska kollega þeirra hjá CBC.
Greint er frá málinu í umfjöllun Guardian. Þar kemur fram að áhorfendur á San Síró leikvellinum hafi fagnað mjög þegar skautadrottningin Erin Jackson leiddi bandaríska hópinn inn á leikvanginn. Þegar myndavélin fór hinsvegar á JD Vance mátti heyra áhorfendur baula. „Þarna er varaforsetinn JD Vance og eiginkona hans Usha - úps, þetta eru ekki...uuu....það eru margir að baula á hann. Flaut, hróp, eitthvað um klapp,“ sagði lýsandinn á kanadísku sjónvarpsstöðinni CBC þegar myndavélunum var beint á varaforsetann. Atvikinu var deilt á samfélagsmiðlum. Usha & JD Vance getting Olympic BOO Birds at the opening ceremony. Drop a 💙 for Milan and Cortina d'Ampezzo, Italy!! pic.twitter.com/5nA12TIK9y— DonkConnects ♻️™ (@donkoclock) February 6, 2026 Þá er þess getið að blaðamaður Guardian Sean Ingle hafi einnig orðið þess var að baulað hafi verið á varaforsetann og einnig Christine Brennan blaðamaður USA Today. Á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC mátti hinsvegar ekki heyra neitt baul og lýsendur sögðu einungis að þar væri varaforsetinn á ferðinni. Þá deildi Hvíta húsið klippu af atvikinu en þar mátti einungis heyra klapp. Þess er getið í umfjöllun miðilsins að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem komið er í veg fyrir að bandarískir áhorfendur verði vitni að andstöðu gegn ríkisstjórn landsins. Þannig hafi skipuleggjendur golfmótsins US Open í Bandaríkjunum í september beðið sjónvarpsstöðvar um að sýna ekki viðbrögð gesta við komu Donald Trump Bandaríkjaforseta á golfvöllinn þegar úrslit mótsins fóru fram. Fram kemur í frétt Guardian að Vance hafi ekki verið sá eini sem hafi mætt neikvæðu viðmóti meðal áhorfenda. Einnig hafi verið baulað á fjóra íþróttamenn frá Ísrael.
Bandaríkin Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira