Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 15:11 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins. Vísir/Arnar Færsla formanns Miðflokksins hefur vakið mikla athygli þar sem hann segir Svíþjóð hættulegra land heldur en El Salvador. Skiptar skoðanir eru um staðhæfinguna og hefur meðal annars þingmaður Viðreisnar tjáð sig um færsluna.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, birti færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir það ótrúlegt hversu hratt hlutirnir geti breyst með réttum og röngum ákvörðunum. „Fyrir ekki svo löngu var El Salvador eitt hættulegasta land í heimi og Svíþjóð var ... Svíþjóð. Nú er Svíþjóð hættulegri en El Salvador,“ skrifar formaðurinn. Hann segir dæmisögu framhaldsskólanema sem segist vera á leið í útskriftarferð til Malmö í Svíþjóð. Móðir nemans leggur frekar til að hann fari til El Salvador. Skiptar skoðanir Færsla Sigmundar hefur fengið töluverða athygli og í athugasemdum tekst fólk á um fullyrðingar hans. Fjöldi segist búa í Svíþjóð og telji glæpatíðnina einungis fara lækkandi. Valentínus Valdimarsson, bráðskurðlæknir búsettur í Malmö, segir Sigmund vera að mála upp óttamynd sem eigi sér ekki stöð í gögnum. Opinberar tölur um dauðsföll af völdum ofbeldis sýni að heildarþróun hafi verið svipuð frá árinu 2001. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hefur einnig birt færslu þar sem hann vísar í gögn sem segja að morðtíðni árið 2023 í Svíþjóð sé 1,1 en í Bandaríkjunum sé hún 5,9. Í öruggasta fylki Bandaríkjanna, New Hampshire, var morðtíðnin 1,8. „Hið alræmda evrópska glæparíki Svíþjóð er sem sagt talsvert öruggara en öruggasta ríki Bandaríkjanna,“ skrifar Pawel. Karen Kjartansdóttir almannatengill birti einnig færslu þar sem hún bendir á að morðtíðni í Vestur-Evrópu hafi almennt lækkað síðustu 30 ár. Í byrjun 21. aldar voru skráð rúmlega sex þúsund viljandi manndráp á ári í löndum Evrópusambandsins en árið 2023 hafi þau verið 3930. „Fjöldinn hefur sem sagt lækkað um meira en þriðjung á rúmum tveimur áratugum, þrátt fyrir að íbúum ESB hafi fjölgað á sama tíma og orðið mun fjölbreyttari. Gömlu góðu dagarnir voru í raun mun ofbeldisfyllri. Bæði í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum var morðtíðni hærri um 1990 en hún er í dag. Hræðsluáróðurinn er hærri nú en tölurnar segja annað.“ Þó nokkrir taka undir orð Sigmundar, þar á meðal faðir hans Guðlaugur Sigmundsson sem segir alla þá sem andmæla syni sínum vilja ólmir „fjölga afætum á félagslega bótakerfinu á Norðurlöndunum“. Færri morð milli ára Fréttastofa kynnti sér tíðni morða síðustu ára annars vegar í Svíþjóð og hins vegar í El Salvador. Vert er að taka fram að morðtíðni er ekki eina leiðin til að meta hversu hættuleg lönd eru og getur það einnig meðal annars farið eftir kyni, kynþætti eða kynhneigð hvort að ríki séu almennt talin örugg eða ekki. Í Svíþjóð er það Sænska ríkisráðið um forvarnir gegn glæpum, Brä, sem tekur saman árlega tölur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt samantekt þeirra fyrir árið 2024 voru alls 92 myrtir í Svíþjóð það árið, samanborið við 121 árið 2023. Í greiningu þeirra er tekið fram að morðtíðnin hefur farið hækkandi frá árinu 2013 en hafa morðin verið að meðaltali 111 árin 2014 til 2023. Því hafi hún lækkað árið 2024. Morðtíðnin lækkar Ekki er hægt að nálgast samskonar tölur hjá El Salvador en fjallað hefur verið um tíðni morða í landinu þar sem hún var lengi vel ein sú hæsta í heiminum. Samkvæmt umfjöllun AP lækkaði morðtíðni snarlega í landinu eftir að Nayib Bukele, forseti El Salvador, boðaði herferð gegn glæpagengjum í landinu. Lögreglan fékk því rýmra leyfi til þess að handtaka og þegar frétt AP var rituð fyrir rúmu ári síðan höfðu 83 þúsund verið fangelsaðir, meirihluti þeirra án réttlátrar málsmeðferðar. Bukele sagði að átta þúsund hefði verið sleppt úr haldi og taldir saklausir. Alls voru 114 myrtir árið 2024, en til að mynda eru þar ekki teknir með fimm menn sem grunaðir voru um aðild að glæpagengi og létu lífið í skotbardaga við lögregluna samkvæmt AP. Í umfjöllun Reuters frá 2024 segir að yfir þúsund manns hafi verið myrtir í landinu árin 2021 og 2022 og yfir tvö þúsund árið 2019. Í samanburði Svíþjóðar og El Salvador má einnig taka með í reikninginn að tæpar ellefu milljónir búa í Svíþjóð en rúmar sex milljónir í El Salvador.
Miðflokkurinn Svíþjóð El Salvador Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira