Innlent

Flutninga­bílar fastir á Þröskuldum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Víða er hált. Myndin er úr safni.
Víða er hált. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Víða um land er hálka eða flughált. Flutningabílar sitja fastir á Þröskuldum.

Á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is, segir að snjóþekja eða krapi sé víða á sunnanverðum Vestfjörðum og þæfingur í Penningsdal. Flughált er á Þröskuldum og sama er uppi á tengingnum í víða í Reykhólasveit. Unnið er að hálkuvörnum.

Á Þröskuldum sitji flutningabílar fastir og erfitt sé að komast fram hjá.

Á Norðurlandi og Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Á austanverðu landinu er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum en krapi í Reyðarfirði, Norðfirði og Fáskrúðsfirði. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði.

Flughált er í Kjós en á Suður- og Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir víða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×