„Sorglegra en orð fá lýst“ Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 20:20 Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt við Háskólann á Bifröst, og Margrét Jónsdóttir, rektor skólans. Manhattan Marketing/Bifröst „Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“
Þetta segir Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst, sem var ásamt öðrum sakaður um að vera ranglega skráður sem meðhöfundur að fræðilegri grein. Siðanefnd skólans hreinsaði hann og tvo aðra starfsmenn af öllum ásökunum í dag. Ragnar gerir athugasemd við það hversu langan tíma tók að fá botn í málið og bendir á að siðanefnd Háskólans í Belgrad, sem meðhöfundar hans starfi við, hafi komist að sömu niðurstöðu 19. desember síðastliðinn. Dýrt ferli Ragnar segir samstarfsfólk á Bifröst vera í áfalli vegna ásakananna en Margrét Jónsdóttir rektor og stjórnendur skólans hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í málinu. Ragnar gerir málið upp í færslu á Facebook-síðu sinni og segir að hann hafi starfað við Háskólann á Bifröst í rúmlega 21 ár. „Að fá þessa áskorun frá samstarfsmönnum mínum eftir það líf sem ég hef lagt skólanum í gegnum þessa rúmlegu tvo áratugi er sorglegra en orð fá lýst og lýsir vel virðingar- og skeytingaleysi stjórnenda gagnvart mannauði sínum.“ Hluta ferlisins hafi lokið í dag með úrskurði siðanefndar skólans. „Ég vissi alltaf að þetta yrði niðurstaðan á endanum en ferlið hefur verið langt. Og það hefur líka verið mjög dýrt, bæði andlega og fjárhagslega,“ segir Ragnar. Sannarlega tekið þátt í greinaskrifunum Hvað varðar fræðigreinina sem hann var sakaður um að hafa ekki tekið þátt í að skrifa segir Ragnar að hann hafi ásamt samstarfsmanni sínum Haraldi Daða Ragnarssyni skrifað rúmlega 35 prósent af texta greinarinnar og haft aðkomu að skrifum þriggja erlendra meðhöfunda. „Ég og kollegi minn við Bifröst höfum á undanförnum árum verið í rannsóknarsamstarfi við erlenda kollega okkar í Slóvakíu og Serbíu þar sem við höfum rannsakað viðhorf nemenda í þessum þremur löndum til notkunar gervigreindar við nám og kennslu.“ Úr þeim rannsóknum hafi þeir skrifað fræðigreinar á borð við þessa. Það sé af og frá að þeir hafi átt „ekkert vitsmunalegt framlag“ í grein sem kærð var til siðanefndar. „Þetta var meðal annars staðfest af siðanefnd Háskólans í Belgrad, þar sem okkar meðhöfundar voru dregnir fyrir siðanefnd síns skóla til að svara til saka um þessa grein, vegna fyrirspurnar stjórnenda á Bifröst sem tilkynntu meðhöfundum okkar um að við sætum undir ásökunum á Íslandi. Siðanefndin í Serbíu hreinsaði okkur af öllum ásökunum þann 19. desember. Sama dag fengu stjórnendur á Bifröst sömu staðfestingu frá Serbíu en samt var málið látið hanga hjá siðanefnd Háskólans á Bifröst í næstum því 50 daga til viðbótar, þegar löngu var orðið ljóst og staðfest að þessar ásakanir áttu ekki við nein rök að styðjast,“ skrifar Ragnar.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Skóla- og menntamál Háskólar Tengdar fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26 Stjórnin treystir Margréti Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans. 5. febrúar 2026 16:49 Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. 5. febrúar 2026 07:02 Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. 4. febrúar 2026 13:58 Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Sjá meira
Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26
Stjórnin treystir Margréti Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans. 5. febrúar 2026 16:49
Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. 5. febrúar 2026 07:02
Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. 4. febrúar 2026 13:58