Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 19:02 Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir er sálfræðingur frá Háskóla Íslands og para- og kynlífsráðgjafi frá Michigan Háskóla. Lesendur geta sent spurningu til hennar í forminu hér fyrir neðan. Getty/Vísir Nýleg spurning frá lesanda „Sæl, er óeðlilegt að gift fólk stundi sjálfsfróun í sitthvoru lagi?“ - 44 ára karl.
Í kynfræðslu eigum við að læra um sjálfsfróun og að það sé eðlileg og góð leið til að kynnast eigin líkama. Með því að stunda sjálfsfróun lærir þú, hægt og rólega, inn á þinn unað og fullnægingu. Það sem þú lærir í gegnum það að stunda sjálfsfróun getur þú svo miðlað til bólfélaga eða maka. En hvað gerist svo í langtímasambandi? Fyrir mörg pör er nógu flókið að tala um kynlíf þannig að sjálfsfróun er, í mörgum tilvikum, aldrei rædd. Vissulega hitti ég pör sem ræða kynlíf og sjálfsfróun reglulega og sem líta á sjálfsfróun sem eðlilega. Meirihluti para finnst hins vegar vandræðalegt eða erfitt að tala um eigin sjálfsfróun. Sennilega vegna þess að sjálfsfróun hefur lengi fylgt leynd og oft skömm. Eitt af því sem ég sting stundum upp á í kynlífsráðgjöf er sameiginleg sjálfsfróun, þar sem parið liggur hlið við hlið og stundar sjálfsfróun saman. Það getur verið frábær leið til að auka kynferðislega nánd þegar par er þreytt eða hefur litla orku fyrir kynlíf. Mig langar að fá aðeins betri mynd af upplifun lesenda. Því spyr ég ykkur, sem eruð í langtíma sambandi: stundið þið sjálfsfróun? Það eru allskonar mýtur um sjálfsfróun í langtímasambandi Að hafa áhuga á eða löngun til að stunda sjálfsfróun í langtímasambandi bendir ekki til þess að neitt sé að sambandinu, kynlífinu eða makanum þínum. Hins vegar eru til allskonar mýtur um sjálfsfróun í langtímasambandi. Til dæmis að það að stunda sjálfsfróun bendi til þess að ekki sé verið að uppfylla þarfir makans, að viðkomandi laðist ekki lengur að maka sínum, að kynlífið sem parið stundar sé ekki nógu gott eða að makinn vilji í raun vera með öðrum. Algengast er að fólk stundi sjálfsfróun en haldi líka áfram að stunda kynlíf með maka sínum. Sjálfsfróun er þá viðbót en ekki eitthvað sem kemur í staðinn fyrir kynlíf. Sjálfsfróun er líka ólík kynlífi að mörgu leyti og sum finna fyrir öðruvísi slökun í sjálfsfróun en þau gera í kynlífi. Sjálfsfróun getur ýtt undir kynlöngun. Fyrir sum eykst kynlöngun því oftar sem viðkomandi stundar kynlíf eða sjálfsfróun. Sjálfsfróun getur einnig verið hjálpleg þegar par er með ólíka kynlöngun. Frekar en að reyna að stunda oftar kynlíf með maka, sem hefur minni löngun, er hægt að sjá um sínar þarfir og stunda sjálfsfróun. Síðan má njóta þess áfram að stunda kynlíf með maka án þess að ólík kynlöngun þvælist fyrir. Hvenær verður sjálfsfróun í langtímasambandi að vandamáli? Ef sjálfsfróun fer að taka tíma frá öðru í daglegu lífi, bitnar á nánd og dregur úr sambandsánægju er vert að skoða stöðuna nánar. Sjálfsfróun ætti ekki að leiða til þess að þú farir að forðast nánd eða kynlíf með maka. Ef þú hefur ekki fulla stjórn á klámnotkun eða ferð að lenda í vanda í kynlífi eftir mikla sjálfsfróun er gott að leita til fagaðila. Sjá alla pistla Aldísar. Þannig að stutta svarið, kæri lesandi, er að sjálfsfróun er eðlileg en mikilvægt er að ræða við maka um kynlíf og sjálfsfróun. Allskonar áhyggjur geta komið fram bæði út frá allskonar mýtum en einnig út frá óöryggi. Vissulega getur sjálfsfróun stundum þróast út í stjórnleysi eða hegðun sem er særandi og slíkt þarf að vinna með. En ef við getum rætt sjálfsfróun í stað þess að fela hana, þá opnast fleiri leiðir að nánd og unaði í sambandinu. Gangi þér vel <3
Kynlífið með Aldísi Kynlíf Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira