Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 08:30 Brittany Mahomes, fyrrum 2. deildarmeistari með sameiginlegu liði Fram og Aftureldingar, er á forsíðu netútgáfu sundfatablaðs Sports Illustrated. Brittany Mahomes prýðir forsíðu netútgáfu sundfatablaðs Sports Illustrated en blaðið fær íþróttakonur til að sitja fyrir í sundfatnaði.
Brittany er þekktust í Bandaríkjunum fyrir að vera eiginkona Patrick Mahomes, leikstjórnanda Kansas City Chiefs og meðeigandi kvennafótboltafélagsins Kansas City Current. Ásamt Brittany eru aðrar eiginkonur og kærustur íþróttamanna á forsíðunni, þær Christen Goff, Haley Cavinder, Ronika Love, Claire Kittle og Normani. Sports Illustrated lýsir henni sem „áhugakonu um heilsu og vellíðan, löggiltum einkaþjálfara og frumkvöðli í líkamsrækt.“ Spilaði á Íslandi sumarið 2017 Við hér heima á Íslandi könnumst við hana frá sumrinu 2017. Brittany, þá Brittany Matthews, kom til Íslands til að spila fótbolta með Aftureldingu/Fram í 2. deildinni. Meðal leikmanna liðsins var íslenski landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir þá kornung að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Brittany gekk til liðs við félagið í júlí og skoraði tvö mörk í fimm leikjum á sínu eina tímabili. Afturelding/Fram vann deildina og tryggði sér sæti í 1. deild kvenna. Hún fékk ekki nýjan samning og hætti síðan í atvinnumennsku. View this post on Instagram A post shared by Sports Illustrated Swimsuit (@si_swimsuit) Veturinn á eftir varð verðandi eiginmaður hennar, Patrick Mahomes, leikmaður í NFL-deildinni og árið eftir sló hann í gegn. Hann hefur unnið NFL-titilinn þrisvar og er í hópi bestu leikmanna deildarinnar. Brittany er fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta en hún er nú þriggja barna móðir. Í grein sinni í Sports Illustrated lagði hún áherslu á mikilvægi kvennaíþrótta. Vill efla kvennaíþróttir „Að fá að taka þátt í íþróttinni og virkilega hjálpa til við að efla kvennaíþróttir er eitthvað sem ég hef mikla ástríðu fyrir,“ sagði Mahomes í viðtali við Sports Illustrated. „Þannig að það er ofboðslega flott að taka þátt í KC Current og byggja upp sigurmenningu hér og setja í raun staðalinn og viðmiðið fyrir kvennaíþróttir. Svo að taka þátt og vekja meiri spennu í kringum NWSL og hjálpa til þegar ég get með þann vettvang sem ég hef og bara að styrkja íþróttakonur í kvennaknattspyrnu er eitthvað sem ég er mjög spennt fyrir.“ Brittany vonast einnig til að geta veitt konum innblástur, sérstaklega eftir barnsburð, til að finna fyrir sjálfsöryggi og hugsa vel um líkama sinn. Börn Brittany og Patricks eru dóttirin Sterling Skye (fædd í febrúar 2021), sonurinn Patrick „Bronze“ Lavon III (fæddur í nóvember 2022), og dóttirin Golden Raye (fædd í janúar 2025). View this post on Instagram A post shared by Sports Illustrated Swimsuit (@si_swimsuit)
Fótbolti NFL Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Sjá meira