Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson skrifar 5. febrúar 2026 09:16 Kæru Seltirningar, val á bæjarfulltrúum hefur bein áhrif á velferð okkar allra. Sveitarstjórnarmál snúast um ábyrgð, forgangsröðun og framkvæmd. Þau snúast ekki um umbúðir heldur um innihald. Um getuna til að leiða samfélag af ábyrgð og festu. Það er þess vegna sem ég styð Lárus Gunnarsson, Lalla Gunn, í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Ég hef starfað lengi í sveitarstjórnarmálum og lært af reynslunni hvað skiptir mestu máli. Bæjarfélög ganga best þegar í forystu situr fólk sem skilur rekstur, hefur reynslu af stjórnun og lætur hlutina ganga. Það er einföld staðreynd. Ég bjó á Seltjarnarnesi í 5 ár. Ég spilaði með Gróttu, vann í Mýrarhúsaskóla og afgreiddi bjór á Rauða Ljóninu. Þótt það hafi verið fyrir allmörgum árum þá tel ég mig þekkja Nesið vel. Ég veit því að Lalli Gunn er fengur fyrir þetta einstaka samfélag. Lalli kemur að borðinu með trausta reynslu úr stjórnun og rekstri. Hann er vanur því að vinna markvisst, setja skýr markmið og fylgja þeim eftir. Hann skilur mikilvægi forgangsröðunar, aga í framkvæmd og ábyrgðar í meðferð sameiginlegra fjármuna. Slík þekking er ómetanleg í sveitarstjórn. Reynsla hans úr afreksíþróttum og þjálfun hefur mótað leiðtoga sem kann að byggja upp lið, nýta styrkleika ólíks fólks og vinna að árangri til lengri tíma. Þar lærir fólk líka að axla ábyrgð og standa saman, bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ég þekki Lalla persónulega. Ég veit að hann er traustur maður, heiðarlegur í samskiptum og stendur með fólkinu sínu. Slíkir eiginleikar skipta máli í opinberu starfi. Ég tel að Lalli Gunn, Lárus Gunnarsson, sé einstaklega vel til þess fallinn að taka ábyrgð í forystu Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Ég mæli eindregið með honum í prófkjörinu 7. febrúar. Höfundur er bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Kæru Seltirningar, val á bæjarfulltrúum hefur bein áhrif á velferð okkar allra. Sveitarstjórnarmál snúast um ábyrgð, forgangsröðun og framkvæmd. Þau snúast ekki um umbúðir heldur um innihald. Um getuna til að leiða samfélag af ábyrgð og festu. Það er þess vegna sem ég styð Lárus Gunnarsson, Lalla Gunn, í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Ég hef starfað lengi í sveitarstjórnarmálum og lært af reynslunni hvað skiptir mestu máli. Bæjarfélög ganga best þegar í forystu situr fólk sem skilur rekstur, hefur reynslu af stjórnun og lætur hlutina ganga. Það er einföld staðreynd. Ég bjó á Seltjarnarnesi í 5 ár. Ég spilaði með Gróttu, vann í Mýrarhúsaskóla og afgreiddi bjór á Rauða Ljóninu. Þótt það hafi verið fyrir allmörgum árum þá tel ég mig þekkja Nesið vel. Ég veit því að Lalli Gunn er fengur fyrir þetta einstaka samfélag. Lalli kemur að borðinu með trausta reynslu úr stjórnun og rekstri. Hann er vanur því að vinna markvisst, setja skýr markmið og fylgja þeim eftir. Hann skilur mikilvægi forgangsröðunar, aga í framkvæmd og ábyrgðar í meðferð sameiginlegra fjármuna. Slík þekking er ómetanleg í sveitarstjórn. Reynsla hans úr afreksíþróttum og þjálfun hefur mótað leiðtoga sem kann að byggja upp lið, nýta styrkleika ólíks fólks og vinna að árangri til lengri tíma. Þar lærir fólk líka að axla ábyrgð og standa saman, bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ég þekki Lalla persónulega. Ég veit að hann er traustur maður, heiðarlegur í samskiptum og stendur með fólkinu sínu. Slíkir eiginleikar skipta máli í opinberu starfi. Ég tel að Lalli Gunn, Lárus Gunnarsson, sé einstaklega vel til þess fallinn að taka ábyrgð í forystu Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Ég mæli eindregið með honum í prófkjörinu 7. febrúar. Höfundur er bæjarstjóri.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar