Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2026 12:30 Antoine Semenyo fór strax að láta til sín taka í búningi Manchester City eftir komuna frá Bournemouth í janúar. Getty/Vince Mignott Hversu miklar líkur eru á að Manchester City verði Englandsmeistari í vor? Þessu veltu sérfræðingar Sunnudagsmessunnar á Sýn Sport fyrir sér og var eitt svarið ansi skýrt: 25 prósent.
City missti niður tveggja marka forystu gegn Tottenham á sunnudaginn, í 2-2 jafntefli liðanna, og er nú sex stigum á eftir toppliði Arsenal, þegar fjórtán umferðir eru eftir. City og Arsenal gætu einnig slegist um deildabikarinn því ef að City tekst að slá Newcastle út í kvöld bíður úrslitaleikur við Arsenal í mars. City er með 2-0 forskot eftir fyrri leikinn. Frammistaða City undanfarið, einn sigur í síðustu sex deildarleikjum, gefur hins vegar ekki til kynna að liðið sé að fara að landa titlum. „Miðað við hvernig þeir eru að spila, ekki að klára leiki og ekki að dóminera eins og við erum vön að sjá City gera, þá lítur þetta vel út fyrir Arsenal. En það er samt alltaf fast í manni að City muni hanga lengur í þeim. Þeir gerðu góð kaup í glugganum og hanga inní þessu aðeins lengur,“ sagði Adda Baldursdóttir í Messunni en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Á Man. City möguleika á titlinum? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim,“ sagði Albert Brynjar Ingason um City-menn og hélt áfram: „Þeir vinna Newcastle 0-2 mjög sannfærandi í deildabikarnum en fara svo á Old Trafford og voru hörmulegir. Svo tapa þeir á móti Bodö/Glimt. Þetta er bara upp og niður, og við erum ekki vön að sjá þetta hjá City. Þeir missa aldrei taktinn eins mikið og á síðasta tímabili, ná að koma til baka og fá mann til að hugsa: Ókei, þeir eru búnir að kveikja á sér. En svo kemur frammistaða eins og [gegn Tottenham]. Þetta eru bara sex stig, og Arsenal á eftir að fara á Etihad. Markatalan er svipuð. En maður sér City-menn ekki fara á þetta skrið sem þeir hafa gert þegar þeir hafa bara „unnið rest“ og tekið þessa titla,“ sagði Albert.
Enski boltinn Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Sjá meira