Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Jakob Bjarnar skrifar 3. febrúar 2026 16:55 Berhöfðaður Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir tíðarfarið í hæsta máta óvenjulegt. Vísir Í janúar mældist enginn snjór í Reykjavík. Mánuðurinn var þannig snjólaus með öllu.
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í fréttaskeyti sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Hann segir þetta ekki einsdæmi en þó verður hann að fletta býsna langt aftur í bókum sínum til að finna svipaða tíð. „Eftir því sem ég kemst næst var svipað upp á teningnum 1929 og 1940. Einn alvítur dagur mældist í janúar 1961 og aftur 2002. Í Reykjavík var síðast alhvít jörð 16. desember og reyndar einnig föl daginn áður. Það voru einu dagarnir með snjó í desember,“ segir Einar. Kort sem Einar birtir með skeyti sínu, af Brunni Veðurstofunnar, sem sýnir reiknað snjómagn á landinu að morgni 3. febrúar. Að hans sögn er veturinn skilgreindur frá desember til mars og er hann því hálfnaður. „Þá mánuði 1976-77 var óvenju snjólétt í höfuðborginni og aðeins 5 alhvítir dagar í heild sinni. Þennan veturinn eru þeir aðeins tveir (mikil fannkoma 27. október tilheyrir haustinu). Ég tel ólíklegt að það snjói næstu 7 til 10 dagana. Ómögulegt er að segja hvað gerist eftir miðjan mánuðinn og þá er mars allur eftir,“ segir Einar. Tíðarfarið að undanförnu er því óvenjulegt í alla staði.
Veður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira