„Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2026 15:01 Baldvin á í erfileikum með að ná endum saman sem atvinnumaður í hlaupum. Baldvin Þór Magnússon, hlaupari, hefur verið að setja mörg ótrúleg Íslandsmet undanfarin misseri. Og nú síðast í Valencia í 10 kílómetra götuhlaupi. Baldvin er búsettur erlendis en þessa dagana er hann á landinu til þess einmitt að hlaupa.
Garpur Ingason Elísabetarson hitti Baldvin á dögunum og ræddi við hann í Íslandi í dag í gærkvöldi. Baldvin er fæddur á Akureyri árið 1999. Fjölskyldan flutti síðan til Hull í Bretlandi árið 2004. „Við komum mikið heim til Íslands. Það var alltaf þrisvar á ári þegar ég var lítill og svo hættum við að koma um páskana, þá voru bara sumar og jól. En líka á sama tíma, þá vorum við alveg nokkrir Íslendingar í mínum árgangi í skólanum. Og þetta voru margar fjölskyldur sem voru þarna á sama svæði þannig að maður var alltaf í tengslum við Ísland og fögnuðum 17. júní og allt það úti,“ segir Baldvin og heldur áfram. „Ég byrjaði í fótbolta bara eins og allir. En svo byrjuðu hlaupin hjá mér þegar ég var svona 10-11 ára og þá var ég mjög heppinn með kennara sem ég fékk. Hann var algjör gúrú eiginlega fyrir mig. Það var mjög mikilvægt að ég fékk þennan kennara inn í lífið mitt. Þarna var ég bara að hlaupa hringi í kringum skólann. Ég veit ekki hvað þetta hefur verið langt en ég myndi halda kannski 800, 600 metrar. Og bara allur árgangurinn keppti. Þarna fann ég fyrst bara að ég var með einhverja hæfileika í þessu.“ Baldvin er hér lengst til hægri sem ungur hlaupari. Í dag er Baldvin atvinnuhlaupari en hvernig lifir hann á þessu? „Ég er með nokkra styrktaraðila og styrki sem halda mér alveg gangandi núna. Það mætti alveg vera betra. Ég er mjög heppinn að ég bý með pabba og fæ aðgang þar úti að topphlaupurum í kringum mig og toppþjálfara. Maður er náttúrulega að elta drauminn sinn og að elta það að þetta verði betra fjárhagslega. Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma.“ Baldvin stefnir á Ólympíuleikana árið 2028 í Los Angeles. „Ég er að fara í rétta átt í hlaupunum, ég vil bara að ég geti haldið áfram að lifa þannig lífi að ég geti lagt allt í hlaupin. Það er ekkert atvinnuöryggi og maður er svona að taka bara eitt ár í einu akkúrat núna,“ segir Baldvin en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Frjálsar íþróttir Hlaup Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Megas er látinn Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira