Verðtryggð fátækt – þjóðarglæpur í boði stjórnvalda og verkalýðsforustu Vilhelm Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 09:02 Tekjulægsta fólki landsins er markvisst beint inn í dýrasta húsnæði sem völ er á, bæði til kaups og leigu, í nafni „félagslegs húsnæðis“. Þrátt fyrir niðurgreiðslur er fermetraverðið uppsprengt miðað við notað húsnæði. Útkoman er ekki félagslegt öryggi heldur verðtryggð fátækt — bundin í steinsteypu og skuld. Stjórnvöld og verkalýðsforusta bera hér sameiginlega ábyrgð. Þetta er ekki lengur spurning um mistök eða vanþekkingu. Afleiðingarnar hafa legið ljósar fyrir í áratugi. Að halda þessu áfram er meðvituð ákvörðun. Verklagið verður enn alvarlegra þegar efnaminna fólk stendur frammi fyrir því að einu raunhæfu úrræðin sem standa til boða fela í sér 80–100% verðtryggðar skuldbindingar. Verðtrygging er ekki öryggistæki heldur kerfisbundinn áhættuflutningur. Hún flytur áhættu frá bönkum, ríki og framkvæmdaraðilum yfir á þá sem minnst mega sín. Hún tryggir ekki stöðugleika heldur tryggir að skuldir haldi áfram að vaxa óháð greiðslum, vinnu eða fórnum. Þetta er ekki gallað kerfi. Þetta er kerfi sem virkar nákvæmlega eins og því er ætlað. Verkalýðsforustan ber hér þunga, beina og óumflýjanlega ábyrgð. Hún hefur ekki aðeins sætt sig við þessa þróun heldur verið virkur þátttakandi í henni. Í stað þess að standa vörð um raunverulegt öryggi launafólks hefur hún réttlætt og normalíserað skuldsetningu. Sú félagslega aðstoð sem áður fólst í að draga úr áhættu og styrkja sjálfstæði hefur verið afnumin og í hennar stað komið kerfi sem normalíserar skuldaánauð og kallar hana félagslega lausn. Þessi stefna hefur verið réttlætt með vísan í svokallaða norræna fyrirmynd. Það sem látið er liggja á milli hluta er hinn raunverulegi kostnaður. Á Norðurlöndum er félagslegt húsnæði byggt við stöðuga vexti, lága verðbólgu, óverðtryggt lánakerfi og fyrirsjáanlegan byggingarkostnað. Að flytja þessa fyrirmynd hálfa leið inn í íslenskt umhverfi uppsprengds byggingaverðs, verðbólgu og vaxta, án varna fyrir tekjulægstu hópana, er ekki félagsleg stefna heldur hugmyndafræðileg vanræksla. Ítrekað hefur verið bent á afleiðingar þess að loka á hlutabótaaðstoð til kaupa á notuðu húsnæði — ódýrustu og sögulega öruggustu leið tekjulægstu hópanna inn á markaðinn. Um leið hafa leiðir sem áður gerðu almenningi kleift að byggja upp húsnæðisöryggi með eigin rammleik verið markvisst þrengdar eða lokaðar með aukinni forræðishyggju og íþyngjandi regluverki. Svörin eru fyrirsjáanleg: slík aðstoð er aðeins heimil í „einstökum tilfellum“, utan borgarinnar og metin eftir geðþóttaákvörðunum HMS. Kerfið er þannig hannað að réttur breytist í undantekningu og úrræði í náðarkorn. Nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, fyrrverandi formaður VR, hefur talað um „betra verklag“. Enn sem komið er birtist það fyrst og fremst í orðum. Í framkvæmd stendur sama lokunin, sama forræðishyggjan og sama áhættufærslan yfir á tekjulægsta fólkið. Án þess að rjúfa þessa grundvallarstefnu er erfitt að tala um raunverulegar umbætur. Ráðherrann ætti jafnframt að hafa í huga að lágtekjufólk nýtur ekki neins öryggisnets þegar það skiptir um vinnu. Það fær hvorki feitan starfslokasamning né tryggingu gegn tekjumissi ef vinnan hverfur síðar. Fyrir það fólk er „tilraun“ með nýtt verklag ekki valkostur heldur áhætta sem það ber eitt. Aðeins 10–15 ár eru síðan fólk var borið skipulega út úr húsnæði sínu í kjölfar húsnæðisbólunnar 2007. Þá var fólki kennt um og sagt að það hefði átt að vita betur. Nú er sama uppskrift endurtekin, á enn hærra verði, með meiri skuldsetningu og lengri skuldbindingum, þar sem áhættan er hjá einstaklingnum en tryggð fyrir bankana. Á sama tíma á fólk með meðaltekjur í fullum erfiðleikum með að standa undir 50% veðsetningu, hvað þá meira. Samt er þjóðinni haldið í þeirri blekkingu að kerfið sé sanngjarnt og „félagslegt“. Sú orðræða þjónar þeim sem hagnast á kerfinu og friðþægingu verkalýðshreyfingarinnar gagnvart því. Eftir hálfa öld af verðbólgu er ekki hægt að halda því fram í góðri trú að verðtrygging í núverandi mynd sé viðunandi úrræði. Hún er meginuppistaða kerfis sem viðheldur óstöðugleika. Að vona að þetta „reddist“ er ekki stefna heldur pólitísk undanbrögð. Á meðan fá fasteignabólur að þrífast, verðlagseftirlit er í molum og ríkisbankar reknir sem gróðramaskínur. Hlutdeildarlán og önnur „félagsleg“ úrræði breyta engu um kjarna vandans: uppsprengt byggingaverð, verðtryggða skuldsetningu og áhættu sem er kerfisbundið færð yfir á tekjulægstu hópana. Að loka félagslegri aðstoð við kaup á notuðu húsnæði útilokar ódýrustu og öruggustu leiðina inn á húsnæðismarkaðinn og bindur fólk í verðtryggt skuldfen til áratuga — ekki til að vernda það heldur til að halda uppi atvinnu, uppbyggingu og fjárstreymi á kostnað þeirra sem minnst mega sín. Efnaminna fólk, oft með takmarkað fjármálalæsi, áttar sig ekki alltaf á því hversu hratt lítið eigið fé brennur upp í verðbólgu. Verðtryggingin étur upp það sem átti að veita öryggi og skilur fólk eftir fast í kerfi sem lofar stöðugleika en skilar stöðnun. Að beina tekjulitlu fólki markvisst í dýrasta húsnæði sem völ er á er ekki félagsleg stefna. Það er þjóðarglæpur. Verklagið minnir á máraraðstoð þar sem aðstoðin felst í tékka sem aðeins er gildur í dýrustu versluninni. Valfrelsi er ekkert, áhættan hjá þeim veikasta og ábyrgðin hvergi. Þetta er ekki tilviljun og ekki vanþekking. Þetta er meðvituð pólitísk ákvörðun — og ráðaleysi — um að viðhalda kerfi sem verðtryggir fátækt. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun