Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason og Jóhanna Pálsdóttir skrifa 1. febrúar 2026 22:01 Það er gjarnan sagt að sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín. Þegar horft er til stöðu barna á Íslandi í dag er óhjákvæmilegt að spyrja: erum við að standa okkur nægilega vel? Biðlistar barna eftir greiningum, stuðningi og meðferð eru orðnir að kerfislægum vanda. Börn með kvíða, þunglyndi, taugaþroskafrávik, áfallasögu eða í ótryggum aðstæðum bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir viðeigandi úrræðum. Á meðan er vandanum í síauknum mæli velt yfir á grunnskólana, þar sem kennarar og annað fagfólk standa oft ein eftir með ábyrgð sem þau hafa hvorki úrræði né umboð til að bregðast við og margir eru því einfaldlega að bugast. Við vitum jafnframt að þegar kerfið bregst snemma í lífi barns leiðir það óhjákvæmilega til neyðarúrræða síðar. Að koma barni í fóstur er slíkt úrræði en það er aldrei fyrsta val og ekki gripið til nema mikið hafi gengið á, svo sem ofbeldi, vanræksla eða annar alvarlegur vandi hjá fjölskyldu. Fósturforeldrar hafa ítrekað bent á að fóstur sé neyðarúrræði, ekki lausn sem komi í stað snemmtækrar íhlutunar. Sama má segja um nauðungarvistun barna með fíkni- og/eða sértækan vanda. Oftast er hann orðinn bæði alvarlegur og flókinn þegar loks er brugðist við. Spurningin er því ekki aðeins hvað við gerum, heldur hvenær. Rannsóknir sýna að fjárfesting í snemmtækum aðgerðum fyrir börn sem hafa orðið fyrir áföllum nemur aðeins brotabroti af þeim samfélagskostnaði sem fellur til þegar sami einstaklingur fer brotinn í gegnum kerfin og út í lífið. Afleiðingarnar birtast meðal annars í geðheilbrigðisvanda, fíkn, kulnun, brotthvarfi úr skóla og jafnvel afbrotum. Þetta er því ekki aðeins siðferðilegt álitaefni heldur skýr hagkvæmnissjónarmið. Þrátt fyrir aukna umræðu um málefni barna vantar enn heildstæða og sjálfstæða sýn. Málefni barna mega ekki vera sett „undir einn hatt“, hvorki heilbrigðis- né menntamála, heldur þurfa að fá sinn eigin sess. Börn eru ekki málaflokkur – þau eru undirstaða samfélagsins. Þar má heldur ekki gleyma fötluðum börnum, því þegar þau ná fullorðinsaldri blasir við verulegur skortur á úrræðum og stuðningi, sem bendir til þess að samfélagið standi ekki nægilega vörð um farsæld þeirra til lengri tíma. Í þessu samhengi boðar Viðreisn til opins fundar á laugardaginn undir yfirskriftinni Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra. Þar verður fjallað um stöðu barna í íslensku samfélagi og raunhæfar leiðir til úrbóta út frá ólíkum sjónarhornum. Jón Gnarr mun fjalla um börn í viðkvæmri stöðu og þá staðreynd að fíknivandi barna sé heilbrigðisvandi sem krefjist annars ramma en hingað til hefur verið notaður. Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, mun ræða farsæld barna og breytingar í barnavernd frá sjónarhóli þeirra sem hafa tekið börn inn á heimili sín þegar allt annað hefur brugðist. Diljá Ámundadóttir Zoëga mun fjalla um áfallamiðaða nálgun í skólakerfinu og mikilvægi þess að umhverfi barna styðji við taugakerfi þeirra í stað þess að brjóta það niður. Lovísa Jónsdóttir mun kynna verkefnið Börnin okkar í Mosfellsbæ, þar sem forvarnir, samráð og snemmtækur stuðningur eru sett í forgang. Við þurfum að hætta að sætta okkur við hálflausnir. Hvort sem um ræðir gámalausnir í skólamálum, langa biðlista í heilbrigðiskerfinu eða skort á samræmdri sýn í barnavernd, þá eigum við að gera kröfu um gæði, fagmennsku og langtímahugsun. Börn eiga rétt á vönduðu, öruggu og manneskjulegu umhverfi – ekki aðeins í orði heldur á borði. Þessi mál snerta okkur öll: foreldra, fagfólk, stjórnvöld og samfélagið í heild. Ef við viljum samfélag sem stendur sterkt til framtíðar verðum við að byrja á því að setja börnin í brennidepil – ekki síðar, heldur núna. Höfundar sitja í málefnaráði Viðreisnar. Hákon Skúlason framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í Viðreisn Reykjavík. Jóhanna Pálsdóttir, kennari og frambjóðandi í prófkjöri Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölskyldumál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar