Innlent

Töfra­maður lú­barinn í Garða­bæ: „Ég hélt að þetta væri búið“

Agnar Már Másson skrifar
Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson var í miðjum spilagaldri þegar hann var skyndilega lúbarinn við strætóskýli í Garðabæ.
Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson var í miðjum spilagaldri þegar hann var skyndilega lúbarinn við strætóskýli í Garðabæ. Samsett Mynd

Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson hélt að hann myndi aldrei fá að sjá dætur sínar aftur er hann lá máttvana undir kjafsthöggum og spörkum ungmenna í Garðabæ á föstudagskvöld. Hann rankaði marinn við sér á bráðamóttöku með brotinn handlegg, glóðurauga og skurð fyrir ofan annað augað.

Daníel, sem er töframaður til margra ára, rekur her söguna af líkamsárásinni í samtali við Vísi en greint var frá árásinni í gær. Þegar Vísir náði af honum tali í dag var hann einmitt að ganga út af lögreglustöð eftir að hafa lýst atvikum við laganna verði.

Daníel segist hafa staðið við strætóskýli við Ásgarð í Garðabæ á föstudagskvöld, eftir að hafa horft á ósigur íslenska landsliðsins í undanúrslitaleik EM. Er hann beið eftir strætisvagninum, sem hann segist taka nánast alla daga til að komast heim til sín í Keflavík, hafi hann ákveðið að sýna hópi ungmenna spilagaldur.

„Ég er þarna í mínu sakleysi að að reiða fram spilin eins og ég hef svo oft gert,“ segir Daníel, 42 ára faðir, í samtali við blaðamann en áður en hann fékk að sýna ungmennunum spilin hafi hann fyrirvaralaust verið kýldur. Hann sá ekki einu sinni hvaðan höggið kom.

„Áður en ég veit af þá fæ ég högg í höfuðið.“

Honum segist hafa liðið eins og þreyttum boxara. Allt hefði farið á snúning. Daníel man svo eftir því að hafa fallið í jörðina og fengið þar annað höggið í andlitið.

„Ég var svona að reyna að standa upp, eins og ég væri á fjórum fótum, en valt alltaf á aðra hliðina.“

Svo missti hann meðvitund. Það síðasta sem hann man eftir af vettvangi er að hafa séð blá ljós frá lögreglubílum.

Hélt að hann væri að deyja

„Ég hélt að þetta væri búið. Ég hélt að þetta væri mitt síðasta, af því að ég var ekkert að ná utan um þetta,“ segir Daníel þegar hann lýsir því sem fór í gegnum huga hans meðan hann lá máttlaus á jörðinni undir hnefahöggum ungmennanna.

Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson segist hafa verið að framkvæma spilagaldur þegar hann fékk skyndilegt högg í höfuðið. Nú er hann handleggsbrotinn.Aðsend

„Ég náði ekki að standa upp. Ég náði ekki að verja mig. Ég náði ekki að tala. Ég náði ekki að öskra. Ég náði ekki að gera neitt,“ heldur hann áfram.

„Ég var bara alveg... máttvana.“

Daníel hafi hugsað að hann myndi aldrei sjá stelpurnar sínar aftur,“ hugsaði hann, að eigin sögn, en Daníel á þrjár dætur; Sonju, Kolbrúnu og Anikku.

Man ekki hvernig slagsmálunum lauk

„Þeir halda bara áfram að sparka, sparka, sparka, sparka, þangað til einhver kemur og stoppar þetta.“

Hann man ekki eftir því hvernig barsmíðunum lauk en Anton Sveinn McKee, formaður Ungra Miðflokksmanna, sagðist við Vísi í gær hafa stigið inn í slagsmálin.

Sem fyrr segir rankaði Daníel Örn við sér þegar viðbragðsaðilar mættu á vettvang en hann var fluttur á bráðamóttöku í Fossvogi, þar sem hann var geymdur frammi á gangi, og vitanlega fúll yfir því „en það var lítið sem ég gat gert í því.“

Sauma þurfti skurð á hægri augnbrún en auk þess brotnaði hann á vinstri handlegg og er því í gifsi.

„Ég man voða lítið eftir því. Ég bara reyndi að sofa eitthvað. Ég lá bara þarna í rúmi frammi á gangi.“

Þessi mynd var tekin af Daníeli Erni Sigurðssyni í september 2025.Vísir/Anton Brink

Lítill neisti sem kveikti bál

Meðan Daníel lá uppi á spítala í gær var greint frá málinu hér á Vísi en lögregla sagði að tveir unglingar hefðu ráðist á mann við strætóskýli nærri Ásgarði í Garðabæ, nánar tiltekið við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu.

Málið er til rannsóknar sem stórfelld líkamsárás. Einn var handtekinn í gær en honum sleppt að lokinni yfirheyrslu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Hópur fjögurra til sex ungmenna á aldrinum sextán til sautján ára hafi verið á staðnum. Lögregla sagði einmitt að það hafi verið „lítill neisti sem kveikti þetta bál.“ Væntanlega spilagaldurinn.

Símanum kastað frá honum

Vissulega var Daníel sjálfur kannski ekki í standi til þess að hringja í lögregluna þegar hann lá lúbarinn á jörðinni, en það hefði væntanlega litlu breytt þótt hann hefði reynt enda segir hann að árásarmennirnir hafi tekið símann af honum og kastað honum burt.

Einhvern tímann er hann lá inni á spítala hefur það runnið upp fyrir honum að hann væri símalaus og segist hann hafa farið aftur á vettvang árásarinnar í gær og blessunarlega fundið gemsann á ný þegar hann var útskrifaður af spítalanum.

En nú er Daníel kominn af lögreglustöðinni og mun væntanlega nýta næstu daga til þess að ná góðum bata. Væntanlega er erfiðara að framkvæma spilagaldur handleggsbrotinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×