Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 16:28 Aron Elís Þrándarson var á skotskónum fyrir Víking Reykjavík í Lengjubikarnum í dag. Getty/George Wood Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur hófu keppni í Lengjubikar karla í fótbolta með 2-0 sigri á Grindavík og sextán ára strákur tryggði KR sigur á KA. Fjórum leikjum er lokið í keppninni í dag.
Víkingar tóku á móti Grindvíkingum í blíðskaparveðri á Víkingsvelli í Fossvoginum í riðli þrjú í dag. Víkingar Íslandsmeistarar frá því á síðasta tímabili í Bestu deildinni en Grindvíkingar spila í Lengjudeildinni. Það voru heimamenn sem unnu tveggja marka sigur í leik dagsins en Aron Elís Þrándarson, sem skoraði fyrsta mark leiksins á 45.mínútu. Það var síðan varnarmaðurinn Róbert Orri Þorkelsson sem innsiglaði 2-0 sigur Víkinga með seinna marki liðsins á 71.mínútu. Góður útisigur KR Í sama riðli tóku svo KA-menn á móti KR á Greifavellinum á Akureyri. Gestirnir frá Reyjavík fengu vítaspyrnu á 70.mínútu þegar að Birgir Baldvinsson, varnarmaður KA, handlék boltann innan eigin vítateigs. Það var Luke Rae sem tók vítaspyrnuna fyrir KR og skoraði fyrsta mark leiksins. Skömmu síðar var hann nærri búinn að tvöfalda forystu gestanna en Steinþór Már Auðunsson gerði frábærlega í því að sjá við honum og verja skot Luke er hann var sloppinn einn í gegnum vörn KA. Komið var fram í uppbótartíma þegar að hinn sextán ára gamli Tristan Gauti Línberg Arnórsson tryggði KR 2-0 sigur með laglegu marki eftir góða undirbúningsvinnu frá áður téðum Luke Rae. KR-ingar hefja Lengjubikarinn á sigri. Auðvelt hjá Fram Í riðli eitt áttu Framarar ekki í neinum vandræðum með lið Ægis frá Þorlákshöfn sem spilar í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Liðin mættust á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í leik sem Fram vann 6-0. Freyr Sigurðsson skoraði tvö af mörkum fram og þeir Egill Otti Vilhjálmsson, Róbert Hauksson, Kennie Chopart og Sigurjón Rúnarsson skoruðu allir eitt mark. Lagleg endurkoma Þróttara Þá er einum leik lokið í riðli fjögur. Það var Lengjudeildarslagur í boði þegar að Leiknir Reykjavík tók á móti Þrótti Reykjavík á Domusnovavellinum. Shkelzen Veseli kom Leiknismönnum yfir á 36.mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins en Þróttarar svöruðu með fjórum mörkum í þeim seinni og unnu að lokum 4-1 sigur. Unnar Steinn Ingvarsson, Adam Árni Róbertsson, Njörður Þórhallsson og Aron Snær Ingason skoruðu mörk Þróttar í leiknum.
Lengjubikar karla Víkingur Reykjavík Grindavík KA KR Fram Leiknir Reykjavík Þróttur Reykjavík Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira