Tap hjá Mikael eftir mikla dramatík og marga VAR dóma Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. janúar 2026 22:00 Mikael Egill er fastamaður í byrjunarliði Genoa. Alessandro Sabattini/Getty Images Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Genoa í 3-2 tapi á útivelli gegn Lazio í 23. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Staðan var markalaus eftir hægan fyrri hálfleik en vítaspyrnur og VAR dómarinn voru í aðalhlutverki í seinni hálfleik. Lazio tók tveggja marka forystu. Fyrra markið var skorað á 56. mínútu af Pedro, úr vítaspyrnu eftir ákvörðun VAR dómarans og Kenneth Taylor tvöfaldaði forystuna aðeins sex mínútum síðar. Genoa var hins vegar snöggt að minnka muninn og jafna síðan leikinn. Fyrra markið var úr vítaspyrnu sem VAR dómarinn dæmdi. Ruslan Malinovskiy steig á punktinn og skoraði. Seinna markið skoraði Vitinha svo á 75. mínútunni. Þá tóku við spennandi lokamínútur með stöðuna jafna en sigurmarkið kom ekki fyrr en hundrað mínútur voru komnar á klukkuna. VAR dómarinn lét þá heyra í sér í þriðja sinn og Lazio fékk vítaspyrnu sem Danilo Cataldi skoraði úr til að tryggja sigurinn. Genoa-menn voru alls ekki sáttir við dóminn og létu vel í sér heyra. Fagnaðarlæti Lazio voru hins vegar ekki mikil því margir stuðningsmenn sniðgengu leikinn í mótmælaskyni. Genoa situr áfram í 13. sæti deildarinnar, með 23 stig og sex stigum frá fallbaráttunni. Mikael Egill er alla jafnan vængbakvörður en Daniele De Rossi hefur verið að stilla honum upp á miðjunni í síðustu leikjum og Mikael virðist vera að festa sig í sessi þar.
Ítalski boltinn Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira