Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. janúar 2026 20:28 Samhliða skjölunum birtust áður óséðar myndir af klefa Epstein. Vísir/Samsett Todd Blanche vararíkissaksóknari Bandaríkjanna tilkynnti í dag um útgáfu á milljónum blaðsíðna úr hinum svokölluðum Epstein-skjölum varðandi mál barnaníðingsins og auðkýfingsins Jeffrey Epstein. Áður óséð skjöl varpa frekara ljósi á andlát hans.
Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins sem hefur verið að kemba skjölin í kvöld var Epstein ýmist á sjálfsvígsvakt eða ekki eftir atvikum og flakkaði sömuleiðis inn og út úr því sem kallað er „sérstakri húsnæðiseiningu“ (e. special housing unit) mánuðina á undan andláti hans. Hurð klefa Epstein.Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna Í sömu skjölum, sem eru hluti af rannsóknargögnum alríkislögreglunnar FBI, var það Epstein þvert um geð að þurfa að deila klefa sínum. Hann mun hafa beitt ýmsum brögðum til að fyrirbyggja slíkt, meðal annars „að biðja um að fara á fund sálfræðings.“ Talsverður styr hefur verið um hvort dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna standi rétt að útgáfu skjala í máli Epstein. Ráðuneytið hefur verið sakað um að ritskoða skjölin til að hlífa Donald Trump forseta og öðrum bandamönnum hans og sömuleiðis að tefja útgáfu þeirra. Sakaði klefanaut sinn um morðtilraun Í skjölunum kemur fram að 23. júlí 2019, um mánuði fyrir andlát hans, hafi Epstein fundist meðvitundarlaus á klefagólfinu með „heimagerðan efnisbút á bringunni.“ Fram kemur að hann hafi mögulega verið að „gera sér upp meðvitund“ vegna þess að verðir urðu varir við að hann deplaði augum. Appelsínugular efnisræmur þöktu klefagólfið.Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna Epstein sagði þáverandi klefanaut sinn hafa reynt að myrða sig. Varðstjóri fangelsisins sem Epstein dvaldi í lagði það til samkvæmt skjölunum að Epstein yrði ekki einn í klefa og sagði þörf á því að gá að klefanum hans á þrjátíu mínútna fresti og einnig að það yrði einnig gert óreglulega. Appelsínugular efnisræmur 10. ágúst 2019, daginn sem Epstein fannst látinn í klefa sínum, var ónafngreindu vitni tilkynnt um að Epstein hefði fundist meðvitundarlaus á gólfi klefa síns. Hann kvaðst hissa á því að hann hefði ekki haft klefanaut. Svona var umhorfs í klefa Epstein eftir að hann fannst þar látinn.Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna Í skjölunum birtust einnig áður óséðar ljósmyndir teknar af klefa Epstein í kjölfar þess að hann var úrskurðaður látinn. Á myndunum sést hvernig appelsínugular efnisræmur lágu á handriði og í einu horni klefans.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Fleiri fréttir Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Sjá meira