Ákæru fyrir manndráp vísað frá Árni Sæberg skrifar 30. janúar 2026 16:48 Luigi Mangione verður ekki tekinn af lífi fyrir morðið á Brian Thompson. Curtis Means-Pool/Gett Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum munu ekki geta farið fram á dauðarefsingu yfir Luigi Mangione, sem ákærður hefur verið fyrir að ráða Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, af dögum árið 2024.
Þann 4. desember 2024 var Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare, eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, skotinn til bana fyrir utan hótel á Manhattan. Eftir umfangsmikla leit var Mangione, sem er í dag 27 ára gamall, handtekinn og hann er grunaður um morðið. Hann var ákærður af alríkissaksóknurum fyrir manndráp og fyrir að nota ólöglegan hljóðdeyfi þegar hann skaut Thompson. Héraðssaksóknari í New York ákærði Mangione einnig fyrir manndráp og hryðjuverk en hryðjuverkaákærunum var síðar vísað frá. Pam Bondi, ríkissaksóknari Bandaríkjanna, hefur sagt að farið verði fram á dauðarefsingu. Nú hefur dómari í New York aftur á móti vísað manndrápsákæru alríkissaksóknara frá dómi af réttarfarsástæðum og þannig tekið fyrir möguleikann á því að Mangione verði dæmdur til dauða, að því er segir í frétt AP. Í frávísunarúrskurði sínum sagði dómarinn að hann hefði vísað manndrápsákærunni frá „til þess að koma í veg fyrir dauðarefsing væri möguleiki sem kviðdómur þyrfti að íhuga.“
Forstjóri UnitedHealthcare myrtur Bandaríkin Tengdar fréttir Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að þykjast vera fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) til að frelsa Luigi Mangione úr haldi. Maðurinn var með pítsaskera í fórum sínum. 29. janúar 2026 22:12 Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10 Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Lögmenn Luigis Mangione, sem hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra, segja að krafa Pam Bondi, dómsmálaráðherra, um dauðarefsingu sé ólögmæt. Hún hafi á árum áður starfað sem málafylgjumaður hjá fyrirtæki sem starfaði fyrir móðurfélag UnitedHealthcare. 20. desember 2025 16:44 Hryðjuverkaákærum vísað frá Dómari hefur vísað frá tveimur af ákærunum gegn Luigi Mangione, sem sakaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra. Ekki verður réttað yfir Mangione í New York fyrir hryðjuverk en morðákærur standa eftir. 16. september 2025 14:15 Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira
Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að þykjast vera fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) til að frelsa Luigi Mangione úr haldi. Maðurinn var með pítsaskera í fórum sínum. 29. janúar 2026 22:12
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10
Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Lögmenn Luigis Mangione, sem hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra, segja að krafa Pam Bondi, dómsmálaráðherra, um dauðarefsingu sé ólögmæt. Hún hafi á árum áður starfað sem málafylgjumaður hjá fyrirtæki sem starfaði fyrir móðurfélag UnitedHealthcare. 20. desember 2025 16:44
Hryðjuverkaákærum vísað frá Dómari hefur vísað frá tveimur af ákærunum gegn Luigi Mangione, sem sakaður er um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, í fyrra. Ekki verður réttað yfir Mangione í New York fyrir hryðjuverk en morðákærur standa eftir. 16. september 2025 14:15