3,7 milljarða skattalækkun í Hafnarfirði Orri Björnsson skrifar 30. janúar 2026 13:00 Síðan Sjálfstæðisflokkurinn tók við völdum í Hafnarfirði árið 2014 hefur hann markvisst lækkað fasteignagjöld á bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæði. Ef ekkert hefði verið gert væru álögur á Hafnfirðinga um 3.700 milljónum hærri á árinu 2026 en þær voru þegar við tókum við 2014. Það eru verulega há fjárhæð. Ef við deilum upphæðinni jafnt á alla íbúa bæjarins, þá eru það um hundrað og tíu þúsund krónur á hvern einasta íbúa á ári, eða fjögur hundruð og fjörutíu þúsund á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Það munar um minna fyrir vinnandi fólk í Hafnarfirði. Gríðarlegar upphæðir Þessar lækkanir á sköttum og gjöldum Hafnfirðinga eru gríðarlegar. Sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði heiti ég því að við munum halda áfram á sömu braut. Við munum gæta aðhalds og varkárni í meðferð á fjármunum bæjarbúa og lækka bæði skatta og gjöld eins og mögulegt er. Ég tek mjög alvarlega þá ábyrgð sem okkur er falin með því að ráðstafa tugum milljarða af skattpeningum á hverju ári. Spyrjum hvað ef? Hvernig ætli staðan væri ef vinstrimenn hefðu farið með völdin hér á síðustu árum? Það er auðvitað nærtækast að horfa til Reykjavíkur þar sem vinstrimenn hafa ráðið ríkjum frá árinu 2010. Þar hefur nálgunin verið gjörólík og íbúar og fyrirtæki fengið að finna fyrir stórauknum gjöldum vegna stöðugt hækkandi fasteignamats. Í Reykjavík hefur álagningin ekki verið lækkuð. Vatnsgjöld og holræsagjöld þar eru innheimt í gegnum Orkuveitu Reykjavíkur en fyrirtækið virðist hafa innheimt gjöld langt umfram það sem leyfilegt er og liggur nú á 25.000 milljóna sjóði í reiðufé. Það er vel í lagt hjá fyrirtæki sem ekki má innheimta hærri gjöld en það sem þjónustan raunverulega kostar. Það skiptir máli hverjir stjórna Það sést auðvitað vel á þessum samanburði hversu miklu máli það skiptir hverjir stjórna bænum. Við Sjálfstæðismenn höfum alltaf einsett okkur að fara vel með fjármuni bæjarbúa. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að skattar og gjöld koma úr vösum almennings, sem ber samfélagið á herðum sér. Á þessu kjörtímabili hefur Samfylkingin lagt til hækkun á útsvari í öll fjögur skiptin sem fjárhagsáætlun hefur verið samþykkt. Þær tillögur eru auðvitað skýrt dæmi um áherslur vinstrimanna. Við höfum lækkað álagninguna á hverju ári, jafnt og þétt. Vatnsgjald hefur farið úr 0,105% í 0,035%, holræsagjald úr 0,195% í 0,093% og fasteignaskatturinn úr 0,28% í 0,199%. Samtals hafa þessi gjöld á íbúðarhúsnæði lækkað úr 0,58% niður í 0,327%. Það munar heldur betur um minna! Á atvinnuhúsnæði hafa gjöldin farið úr 1,95% niður í 1,535% og þar með varð sú álagning ein sú lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Áfram fyrir Hafnarfjörð Skatttekjur eru að sjálfsögðu nauðsynlegar til þess að við getum haldið uppi þjónustu við bæjarbúa og rekið það góða samfélag sem við höfum byggt upp. En við Sjálfstæðismenn leggjum ekki síður áherslu á ráðdeild og hagkvæman rekstur. Heilbrigður bæjarsjóður er grunnstoð þess fyrirmyndarsamfélag sem við viljum búa í. Á þeim grunngildum munum við vinna áfram fyrir Hafnarfjörð. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri Björnsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar