Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 26. janúar 2026 12:26 Einar Þorsteinsson mun áfram leiða lista Framsóknar í borginni. Vísir/Vilhelm Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, verður sjálfkjörinn á lista flokksins í Reykjavík til framboðs í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi verður einnig sjálfkjörin í annað sætið. Aðrir fulltrúar verða kynntir á kjördæmisþingi Framsóknar þann 7. febrúar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá kjörstjórn Framsóknarflokksins í Reykjavík. „Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem grasrót Framsóknar í Reykjavík sýnir mér. Verkefnið framundan er gríðarlega spennandi og ég finn að borgarbúar krefjast þess að núverandi meirihluti sé felldur og að flokkar í borgarstjórn myndi bandalag um breytingar. Ég vil óska Magneu Gná innilega til hamingju með annað sætið, hún hefur verið afar öflugur samherji og mun gera frábæra hluti fyrir Reykjavík á næsta kjörtímabili,“ er haft eftir Einari í tilkynningunni. Magnea Gná Jóhannsdóttir er borgarfulltrúi Framsóknar í Reykjavík og verður áfram í öðru sæti á lista flokksins í borginni í vor.Vísir/Einar Hann segir niðurstöðuna endurspegla þá samstöðu og traust sem ríki innan flokksins. Þá segir kjörstjórn að niðurstaðan sé til marks um þá samstöðu og að Einar og Magnea séu „best til þess fallin“ að leiða listann í borginni í vor. Sjá einnig: Magnea vill hækka sig um sæti „Á yfirstandandi kjörtímabili hafa þau aflað sér dýrmætrar reynslu í borgarstjórn og borgarmálum almennt. Sú reynsla er afar mikilvæg og ljóst að hún verður ekki sjálfgefin hjá öllum þeim flokkum sem bjóða fram í komandi kosningum,“ segir ennfremur í tilkynningunni frá kjörstjórn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Framsóknarflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira