Hver spurði þig? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 20. janúar 2026 09:15 Hver spurði þig um bílastæðareglur Reykjavíkurborgar? Sennilega ekki borgin. Árið 2019 setti Reykjavíkurborg sér reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík. Það kann að hljóma skynsamlegt að setja viðmið um bílastæðafjölda við nýbyggingar. Þar til umræddar reglur eru lesnar. Samkvæmt ferðavenjukönnunum nota um 70% fullorðinna Reykvíkinga bíl sem sinn aðal samgöngumáta til vinnu eða skóla. Fjölskyldubílinn er því lang mest nýtti ferðamáti borgarbúa en samt gera reglur borgarinnar ráð fyrir að hámarki 0,75 bílastæði við 2 herbergja íbúð á svæði 1 sem teygir sig yfir borgina endilanga. Þau sem búa við nýbyggingar upplifa afleiðingarnar þessara reglna á hverjum degi, þ.e. skort á bílastæðum fyrir utan heimili þeirra. Við þekkjum öll sögur af fólki sem fær ekki að breyta hluta af garðinum í bílastæði, blokkir sem eru byggðar með 0,25 bílastæði á íbúð og umræðuna há bílastæðagjöld. Reglur Reykjavíkurborgar um bílastæði eru umdeildar. Ekki af ástæðulausu enda eru þær mjög íþyngjandi fyrir borgarbúa og hafa bein áhrif á lífsgæði þeirra. Eðlilegt er því að spyrja borgarbúa hvernig þeir vilja að reglur borgarinnar um bílastæði sé háttað. Raunverulegt ferðafrelsi felst ekki í því að þröngva öllum í einn samgöngumáta. Það felst í jafnvægi. Að byggja samtímis upp innviði fyrir bíla, hjól, strætó og gangandi vegfarendur. Fólk á að hafa raunverulegt val um ferðamáta, ekki aðeins þann kost sem borgarstjórnarmeirihlutinn telur æskilegan. Yfirlýsingar fulltrúa meirihlutans benda þó til þess að sjónarmið þeirra séu úr takti við vilja borgarbúa. Borgarstjóri Samfylkingarinnar hefur til dæmis sagt að bílastæði sem nú eru fyrir utan heimili fólks séu ekki endilega örugg til framtíðar. Þá hefur nýr oddvitaframbjóðandi sama flokks lýst því yfir að bílastæðagjöld í Reykjavík séu of lág miðað við aðrar borgir. Dæmi hver fyrir sig í næstu kosningum. Við í Framsókn teljum tímabært að Reykjavíkurborg kanni afstöðu borgarbúa og leggjum til að gerð verði könnun á meðal Reykvíkinga á reglum borgarinnar um bíla- og hjólastæði. Slík könnun myndi gefa borginni heildstæðari mynd af vilja og þörfum íbúanna og nýtast við framtíðarákvarðanir. Það er kominn tími til að borgin spyrji þig! Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bílastæði Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar