„Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2026 06:30 Ruben Amorim hafði ekki trú á Rasmus Höjlund og leyfði honum að fara til Napoli þar sem hann hefur blómstrað. Getty/Catherine Ivill Antonio Conte þjálfari Napoli virtist skjóta aðeins á Ruben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfara Manchester United, og gefa í skyn að hroki fyrri þjálfara hafi hindrað þroska Rasmus Höjlund sem framherja.
Höjlund gekk til liðs við Napoli á lánssamningi út tímabilið en ítalska félagið er skuldbundið til að gera samninginn varanlegan ef það kemst í Meistaradeildina. Daninn gekk til liðs við United frá Atalanta árið 2023 fyrir 64 milljónir punda og skoraði 26 mörk í 95 leikjum. Amorim hafði litla trú á Dananum Amorim hafði litla trú á Dananum á meðan Portúgalinn stýrði United-liðinu á Old Trafford og Höjlund kom ekki við sögu í neinum af fyrstu fjórum leikjum félagsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Højlund byrjaði vel hjá Napoli og skoraði níu mörk í fyrstu tuttugu leikjum sínum en hefur ekki fundið netmöskvana síðan hann skoraði tvö mörk gegn Cremonese þann 28. desember síðastliðinn. Í stað þess að þjálfa hann kenna þeir honum um „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir og vilja ekki aðlagast. Þeir sjá ungan framherja eiga í erfiðleikum og í stað þess að þjálfa hann kenna þeir honum um,“ sagði Antonio Conte á blaðamannafundi á föstudag fyrir sigurinn gegn Sassuolo um helgina. „Þeir kvarta alltaf og kenna öllum um nema sjálfum sér, því allt er rétt af þeim á silfurfati,“ sagði Conte. Íþróttastjóri Napoli, Giovanni Manna, hefur sagt að hann líti á varanleg kaup á Højlund frá Manchester United sem „formsatriði“. Við gerðum allt til að fá hann „Við gerðum allt sem við gátum til að fá hann,“ sagði Manna við ítalska dagblaðið Corriere dello Sport. „Það voru sögufrægari félög sem höfðu áhuga en vilji hans skipti sköpum og við erum stolt af því. Það er kaupréttur og kaupskylda ef við komumst í Meistaradeildina,“ sagði Manna. „Leikmaðurinn lítur á sig sem leikmann Napoli og það sama gildir um okkur. Þetta er afar mikilvægt,“ sagði Manna. Napoli er í þriðja sæti í Serie A, sex stigum á eftir toppliði Internazionale og mætir Juventus á sunnudag.
Enski boltinn Ítalski boltinn Manchester United Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira