Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 07:00 Vonandi fyrir íslenska landsliðið mun Haukur finna fjölina sína á nýjan leik. Sérfræðingar Besta sætisins standa á gati varðandi það hvers vegna stoðsendingahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar nái ekki að spila vel með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Staða Hauks Þrastarsonar í íslenska landsliðinu var til umræðu í hlaðvarpinu Besta sætinu eftir sigur Íslands á Ítalíu í gær. Sérfræðingar þáttarins segja Ísland ekki hafa efni á því að hafa Hauk ekki í stuði ætli liðið sér langt á mótinu.
Í æfingaleikjunum hjá íslenska landsliðinu í aðdraganda EM var eftir því tekið hversu illa Hauki tókst að finna sig í þeim leikjum og í fyrsta leik á EM gegn Ítalíu kom hann inn á þegar að um tíu mínútur voru eftir af leiknum. Haukur hefur verið að gera afar góða hluti með Rhein Neckar-Löwen í þýsku úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili, hans fyrsta tímabil í Þýskalandi, en virðist ekki takast að láta kné fylgja kviði með landsliðinu. „Þetta er mjög skrýtið,“ segir Einar Jónsson, sérfræðingur Besta sætisins, um stöðuna á Hauki. „Það verður að segjast alveg eins og er. Hann átti mjög erfitt uppdráttar í fyrstu leikjunum sínum í þýsku deildinni með Rhein Neckar-Löwen en svo bara springur hann út, dælir stoðsendingum og er meira að segja farinn að skora meira en hann hefur verið að gera. Hann virðist þar vera að finna það gæðastig, sem við öll vonuðumst eftir hjá honum og ætlumst til af honum.“ En þegar komi að síðustu leikjum með íslenska landsliðinu honum ekki tekist að grípa gæsina. „Í æfingaleiknum á móti Slóveníu í aðdraganda EM kemur hann inn á eftir einhverjar tuttugu mínútur og er farinn aftur út af skömmu seinna. Hann fær þarna tvær mínútur fyrir bull hjá sjálfum sér og fokkaði því eiginlega upp sjálfur. Haukur var aðeins inni í þessu á síðasta stórmóti en það er bara erfitt að staðsetja hann í þessu liði. Þetta er bara ekki að virka.“ Og það hjá leikmanni sem Einar hélt að yrði nánast fyrstur inn af bekknum hjá okkur á þessu móti en á móti Ítölum „fær hann ruslmínúturnar.“ „Vonandi var þetta bara leikplanið hjá Snorra með Hauk,“ bætir Rúnar Kárason, fyrrverandi landsliðsmaður við. „Að leikurinn á móti Ítölum væri ekki leikurinn hans Hauks og að hann henti betur í leikjunum á móti Póllandi og hinum. Ég vil svo mikið að hann fái pláss þarna og vil að Haukur taki sér pláss þarna. Hann er ekki að því á þessari stundu.“ Erfitt sé að setja fingur á það hverju er um að kenna. „Hann er ekki að skila sínu. Er Snorri ekki að gefa honum nógu margar mínútur? Er Haukur ekki með nógu mikið sjálfstraust? Það er rosa asnalegt að segja að leikmaður, sem er að spila allar mínútur með Rhein Neckar-Löwen og er stoðsendingahæstur í þýsku deildinni, sé ekki með nógu mikið sjálfstraust. Þetta er mjög sérstakt.“ Einar og Rúnar eru hins vegar sammála um að ef Ísland ætli sér langt á mótinu þá hafi landsliðið ekki efni á því að hafa Hauk ekki í stuði því það munu koma tímapunktar í meira krefjandi leikjum þar sem liðið muni þarfnast fimm eða fleiri marka frá honum. Umræðuna um Hauk Þrastarson sem og ítarlega greiningu á fyrsta leik Íslands á mótinu má hlusta á í hlaðvarpsþættinum Besta sætið.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í fótbolta Þýski handboltinn Besta sætið Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Fleiri fréttir Einar fagnaði eftir Íslendingaslag Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Sjá meira