Metár í hlaupum á Íslandi 2025 og unga fólkinu að þakka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 06:32 Það eru margir farnir að hlaupa á Íslandi en þessar tvær tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og voru sáttar að hlaupi loknu. Vísir/Lýður Valberg Hlaup á Íslandi hafa aldrei verið vinsælli en þetta kemur vel fram í fyrstu ársskýrslunni sem gefin er út um hlaupasamfélagið á Íslandi.
Það var síðan hlaupadagskra.is sem tók saman þessar afar merkilegu upplýsingar um stöðu mála á Íslandi. Skýrslan ber nafnið Hlaupárið 2025 en þar sést að þátttaka í skipulögðum hlaupum hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og fjölbreytni viðburða hefur aldrei verið meiri. 141 hlaupatengdir viðburðir Árið 2025 voru haldnir 141 hlaupatengdir viðburðir víðs vegar um landið, allt frá stuttum skemmtiskokkum og fjölskylduhlaupum yfir í krefjandi utanvegahlaup, maraþon, bakgarðshlaup og önnur úthaldshlaup. Skráningar í hlaupin fóru yfir 45 þúsund og fjölgaði þeim um rúmlega 25 prósent milli ára. Það sem meira er telst heildarhækkunin frá árinu 2023 vera 61 prósent sem er rosaleg aukning. Mesti vöxturinn er í styttri vegalengdum og yngri aldurshópum en einnig er mikill vöxtur í bakgarðshlaupum og úthaldshlaupum, þar sem þátttakendur keppa í langvarandi áreynslu, oft yfir marga klukkutíma eða jafnvel daga. Þótt þessi hlaup séu fámennari en hefðbundin götuhlaup sýna gögnin stöðugan og skýran vöxt í skráningum og áhuga sem endurspeglar breytt viðhorf til hlaupa og þrekíþrótta á Íslandi. Sérstaklega meðal yngri aldurshópa Á sama tíma heldur breið þátttaka áfram að aukast, sérstaklega meðal yngri aldurshópa. Skráningum barna, ungmenna og ungs fullorðins fólks hefur fjölgað hraðar en í öðrum aldurshópum og meðalaldur fullorðinna hlaupara hefur lækkað milli ára. Þetta bendir til þess að hlaup séu að festast í sessi fyrr á ævinni sem aðgengileg og sjálfbær hreyfing. Það má segja að unga fólkið knýi áfram hlaupaæðið. Kynjahlutföll almennt jöfn Kynjahlutföll í hlaupum eru almennt jöfn, en skýrslan sýnir jafnframt skýran mun eftir vegalengdum. Konur eru í meirihluta í styttri vegalengdum, sérstaklega á bilinu sex til sextán kílómetrar, á meðan karlar eru fleiri í lengri vegalengdum. Þátttaka erlendra hlaupara jókst einnig verulega árið 2025, sem sýnir að Ísland er orðið eftirsóknarverður áfangastaður fyrir hlaupaviðburði, bæði á götum og úti í náttúrunni. Skýrslan Hlaupárið 2025 er mikið fagnaðarefni enda sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og markar upphaf reglulegrar, gagnadrifinnar yfirsýnar yfir hlaupaár Íslands. Hér fyrir neðan má sjá fleiri athyglisverðar tölur úr skýrslunni. View this post on Instagram A post shared by Hlaupadagskra.is (@hlaupadagskra.is)
Hlaup Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira