„Donald Trump er algjör hálfviti“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. janúar 2026 07:00 Systkinin Sondre og Ukaleq Slettemark vilja gera sína afstöðu skýra. Grænlensku skíðaskotfimisystkinin Sondre og Ukaleq Slettemark munu keppa fyrir hönd Danmerkur á Vetrarólympíuleikunum og nýta tækifærið til að senda Bandaríkjastjórn skýr skilaboð. „
Við munum keppa fyrir Danmörk undir danska fánanum. Við erum mjög stolt af því. Fyrir okkur er mjög mikilvægt að hafa Danmörku sem skjól í að leita og samstarfið hefur gengið mjög vel. Við viljum sýna að Grænland og Danmörk standa saman og senda skýr skilaboð til Bandaríkjanna að við höfum engan áhuga á því að verða hluti af Bandaríkjunum“ sagði Ukaleq Slettemark við danska ríkismiðilinn. Ástæðan fyrir þessum ummælum er auðvitað ágirnd bandaríska forsetans Donalds Trump í Grænland en skoða má vendingar í þeim málum hér fyrir neðan. Þau systkinin fylgjast vel með málinu og sögðu það taka mikið pláss á heimilinu. „Við tölum auðvitað mikið um þetta og við erum mjög ósátt. Donald Trump er algjör hálfviti. Hann hefur engan skilning á okkar samfélagi eða menningu, því sem Grænland er. Þess vegna er þetta ógnvekjandi og við ímyndum okkur að hið versta gæti gerst“ sagði Ukaleq. Ukaleq óttast hið versta. Systkinin keppa yfirleitt fyrir hönd Grænlands á heimsmeistaramótum en samkvæmt reglum alþjóða Ólympíusambandsins mega bara þau ríki sem viðurkennd eru sjálfstæð af Sameinuðu þjóðunum senda fulltrúa á Ólympíuleikana. Grænland er það ekki og þar af leiðandi keppa þau fyrir hönd Danmerkur en hið sama gildir um Færeyinga á ÓL. „Ég er stoltur af því að vera frá Grænlandi og heppinn að geta keppt fyrir Grænland alla hina daga ársins, Ólympíuleikarnir eru öðruvísi og við sýnum því skilning. Ég lít á þetta sem svo að við séum að keppa fyrir hönd alls konungsríkisins og við ætlum að gera konung vorn stoltan. Einn góðan veðurdag getum við kannski keppt fyrir hönd Grænlands“ sagði Sondre. Sondre sér fyrir sér að keppa fyrir Grænland á Vetrarólympíuleikunum. Niklas Härtig/VOIGT/GettyImages Þau eru ekki búin að skipuleggja, en útiloka alls ekki, að sýna afstöðu sína með einhvers konar táknrænum hætti á meðan leikunum í Mílanó og Cortina stendur. „Sem íþróttamaður ertu með vettvang til að tala um mikilvæg málefni á alþjóðlegu sviði. Ég mun nýta mér þann vettvang, en ef við ákveðum að vera með einhvern gjörning þá verðum við líklega bönnuð frá Bandaríkjunum að eilífu. Ég get svosem lifað með því“ sagði Ukaleq.
Skíðaíþróttir Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira