Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Lovísa Arnardóttir skrifar 14. janúar 2026 14:52 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segir baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi henni hjartans mál. Vísir/ívar fannar Dómsmálaráðuneytið mun fara yfir niðurstöður Mannréttindadómstóls Evrópu og meta hvort og þá með hvaða hætti sé tilefni til frekari úrbóta. Ráðuneytið hefur óskað þess að refsiréttarnefnd taki dóminn til skoðunar. Dómsmálaráðherra segir alla ríkisstjórnina taka niðurstöðu MDE alvarlega en ríkið var fundið brotlegt í öðru málinu.
Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í gær upp dóma í tveimur málum sem höfðuð voru gegn íslenska ríkinu. Málin vörðuðu rannsókn og meðferð kynferðisbrotamála og var íslenska ríkið talið brotlegt í öðru þeirra. Alls kærðu níu konur niðurstöðu sinna mála til Mannréttindadómstóls Evrópu árið 2021. Konurnar áttu það sameiginlegt að mál þeirra voru annaðhvort felld niður hjá saksóknara eða rannsókn hjá lögreglu hætt. Niðurstaða liggur nú fyrir í máli sjö kvenna. Ríkið hefur gerst brotlegt í máli tveggja kvenna af þessum níu. Litið alvarlegum augum „Ég og ríkisstjórnin öll tökum dóma Mannréttindadómstóls Evrópu alvarlega og lítum til þeirra við áframhaldandi þróun og úrbætur í réttarkerfinu. Traust þolenda til réttarkerfisins skiptir gríðarlegu máli og það er verkefni stjórnvalda að byggja það traust upp,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Hún bætir því við að þó svo að dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að í hvorugu málinu væri um kerfisbundna mismunun að ræða sé alvarlegt að dómurinn telji að rannsókn ákæruvaldsins hafi verið ábótavant. Dómstóllinn benti á það í niðurstöðu sinni að legið hefði fyrir játning manns um að hafa farið óboðinn inn í tjald 16 ára stúlku á útihátíð og þar þuklað á henni. Hann sagðist þó ekki hafa haft neitt kynferðislegt í huga, að hann hafi ekki vitað að hún væri aðeins 16 ára og við ákvörðun um útgáfu ákæru var litið til ásetnings mannsins frekar en til þess hvort stúlkan hefði gefið samþykki fyrir veru hans og gjörðum í tjaldinu. Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að töluverðar breytingar hafi átt sér stað frá því að atvikin í málunum níu sem voru kærð til Mannréttindadómstólsins áttu sér stað, frá 2012 til 2019. Hafi breytt verklagi „Meðal þeirra má nefna breytingar á löggjöf, verklagi og skipulagi hjá lögreglu og ákæruvaldi með það að markmiði að bæta rannsókn og meðferð slíkra mála. Þá hafa breytingarnar haft það markmið að stuðla að bættri upplifun og betri þjónustu við þá sem í hlut eiga og styrkja stöðu brotaþola,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að í ráðuneytinu sé nú verið að leggja lokahönd á nýja landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum þar sem kynntar verða 25 aðgerðir í málaflokknum. Landsáætlunin á, samkvæmt þessari tilkynningu, að tryggja skýrari yfirsýn yfir aðgerðir, úrræði og þjónustu og er fyrst sinnar tegundar. Í henni verða aðgerðir um meðferð kynferðisbrota auk þess sem þar verður að finna aðgerðir sem innleiða eiga ákvæði Istanbúl-samningsins sem er samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Þá er bent á í tilkynningu að ráðherra hafi kynnt frumvarp um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili ásamt aðgerðum til verndar þolendum. Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps dómsmálaráðherra. Breytingum í frumvarpinu er ætlað að stuðla að auknu öryggi brotaþola og samræmast þeim markmiðum ríkisstjórnarinnar að taka fast á kynbundnu ofbeldi, samhliða því að styrkja aðra þætti réttarkerfisins til að tryggja hraða og örugga málsmeðferð. „Þetta er mér hjartans mál. Ég hef lagt sérstaka áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi og mun halda því áfram. Ég hlakka til að kynna betur þessar aðgerðir sem ég bind vonir við að muni hjálpa til við að efla traust þolenda á kerfið allt,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningunni.
Mannréttindadómstóll Evrópu Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Heimilisofbeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira